Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í lok ágúst lágu fyrir tölur sem bentu til a.m.k. 35.000 umframdauðsfalla í Evrópu í hitabylgju sumarsins. Sú tala náði aðeins til um helmings álfunnar og ágúst var þá ekki að fullu kominn inn í gögnin. Við vitum að loftslagsbreytingar af mannavöldum auka tíðni og ákefð ýmissa veðuröfga, þar á meðal hitabylgna. Horfum aðeins á þessa tölu, 35.000 umframdauðsföll, 35.000 líf. Fyrir 25 árum breyttist heimurinn þegar 2.977 manns létu lífið í hryðjuverkaárásunum 11. september. Við minnumst þess atburðar enn enda hafði hann áhrif á okkur öll og breytti því hvernig heimsbyggðin hugsaði um öryggi og ógnir. Loftslagsbreytingar hafa líka áhrif á okkur öll. Þær kosta mannslíf, þær ógna náttúru, samfélögum og lífsviðurværi fólks. En viðbrögðin eru einhvern veginn allt önnur. Kannski vegna þess að ógnin kemur ekki fram á einum morgni, hún birtist í hitabylgju hér og flóði þar, uppskerubresti eða skógareldi annars staðar, og kannski líka vegna þess að gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir eru bundnir við að breytingarnar gerist hægar en vísindin kalla á. En við verðum að fasa út notkun jarðefnaeldsneytis.
Í morgun voru kynntar nýjar tölur um losun Íslands. Góðu fréttirnar eru að heildarlosun dróst saman um 3,9% á milli ára en slæmu fréttirnar eru að við erum enn langt frá markmiðum okkar. Með núverandi aðgerðum stefnir Ísland í aðeins 21% samdrátt í samfélagslosun árið 2030 en markmiðið er 41%. Við þurfum að gera meira og hraðar. Við erum að hraða orkuskiptum, byggja upp hleðsluinnviði og hefja endurheimt hundruð hektara votlendis. Í grunninn snýst þetta um að afstýra vá en fátt er svo með öllu illt að ei boði gott. Þegar við skiptum út innfluttu jarðefnaeldsneyti fyrir íslenska endurnýjanlega orku drögum við ekki bara úr losun, við styrkjum orkufullveldi okkar og efnahagslegt viðnámsþol. Þegar við endurheimtum votlendi og önnur vistkerfi bindum við kolefni (Forseti hringir.) en verndum um leið náttúruna og líffræðilega fjölbreytni og þegar við styðjum loftslagsvænni landbúnað og græna nýsköpun getum við skapað ný tækifæri og styrkt byggðir um allt land. Við vitum hvert við þurfum að fara. Nú þurfum við einfaldlega að komast þangað miklu, miklu hraðar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)