158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Frú forseti. Ríkisstjórnin ætlar að hætta að reka ríkið á yfirdrætti. Það þekkja það allir sem reka heimili að það getur verið gaman að spreða en reikningurinn kemur alltaf á endanum, annaðhvort til framtíðarsjálfsins eða jafnvel til barnanna ef maður gætir sín ekki. Það eru ekkert allir útgjaldaliðir heimilisins jafnmikilvægir, maður heldur áfram að greiða af lánunum, þótt þau lækki nú sjaldan, og gefa börnunum að borða. En maður minnkar að sjálfsögðu munað og geymir það sem bíða má. Ríkisstjórnin ætlar ekki að taka velferðina að láni frá framtíðarkynslóðum. Ríkisstjórnin ætlar að viðhalda mikilvægustu kerfunum okkar og gefa í þar sem innviðaskuld er mikil, rétt eins og maður kaupir ekki heitan pott þegar þakið lekur.

Forseti. Vegir víða um land hafa grotnað niður árum saman og viðhaldsþörfin hefur safnast upp. Þessu erum við að breyta. Í fjárlögum er gert ráð fyrir 17,6 milljörðum kr. í viðhald sem á að hækka upp í 20 milljarða kr. á kjörtímabilinu. Til samanburðar gerði fyrri ríkisstjórn ráð fyrir aðeins um 13 milljörðum kr. í viðhald. Þarna munar um 7 milljörðum. Kyrrstaða hefur ríkt í jarðgangagerð frá árinu 2020. Þessu erum við líka að breyta. Við ætlum að hefja framkvæmdir og að auki er verið að hefja hönnun á öðrum mikilvægum kostum. Þetta skiptir máli. Síðasta ríkisstjórn kom samþykktri samgönguáætlun ekki í gegnum þingið en þessu erum við að breyta. Við kláruðum málið og stofnuðum líka innviðafélag. Þannig sköpuðum við grundvöll fyrir stórsókn í mikilvægum samgönguframkvæmdum.

Virðulegur forseti. Allt þetta gerum við á sama tíma og við skilum hallalausum fjárlögum. Við erum að fjárfesta í innviðum en hætta um leið að reka ríkissjóð á yfirdrætti, því að mesta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið er lægri verðbólga og lægri vextir og þar ætlar ríkið, eins og skynsamlega rekið heimili, að leggja sitt af mörkum.