framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans umfjöllun um þessa aðgerðaáætlun sem ég hef nú ýmislegt um að segja, eins og ég mun koma inn á í minni ræðu. Ég vildi glöggva mig á einum punkti í aðgerðaáætluninni sjálfri af hálfu hæstv. ráðherra. Þar er talað um að bæta aðgengi að margvíslegum gögnum. Nú hefur í þessum þingsal t.d. verið rætt um mælaborð á sviði afbrota og glæpa, sem er náttúrlega bara einn angi þessarar umræðu. En það er athyglisvert að stjórnvöld fari af stað með yfirlýsingar um að bæta aðgengi að gögnum. Er hæstv. ráðherra kunnugt um áform um slíka gagnasöfnun inni í dómsmálaráðuneyti og er vísað til þess í þessari aðgerðaáætlun? Það er því miður bara ein mínúta sem ég hef hér en ég bíð svars frá hæstv. ráðherra og svo getum við vonandi haldið áfram.