158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:26]
Horfa

Ingveldur Anna Sigurðardóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil feta aðeins aðrar slóðir í mínu seinna andsvari en ég þakka ráðherra fyrir svarið samt sem áður. Við getum verið sammála um að það sé mikilvægt að innflytjendur læri íslensku til að aðlagast íslensku samfélagi og er það líklegast eitt það fyrsta sem innflytjendur ættu að gera. Margir innflytjendur búa úti á landi til að vinna, m.a. í ferðaþjónustu og fiskvinnslu og hvaðeina. Það sem ég er að velta fyrir mér er hvort búið sé að kortleggja það hvernig aðgengi að námskeiðum í íslensku sé nú þegar í dreifðari byggðum og þá hvernig þessi námskeið séu sótt o.s.frv.