framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna hér. Mig langar að víkja að máli sem snýr að því að það er mjög mikið af flóttafólki uppi á Bifröst enn þá. Á meðan við vorum að taka við flóttafólki frá Úkraínu var ákveðið að færa stóran hluta af þeim hópi upp á Bifröst og voru yfir 180 flóttamenn, ef ég man rétt, þegar mest var. Síðan hefur komið í ljós að sveitarfélagið hefur í raun eiginlega verið í þessari glímu eitt og sér. Ég verð að segja það, og það hef ég kannski ekki beinlínis upp á núverandi ráðherra að klaga, að það hefur verið ótrúlegt sinnuleysi gagnvart sveitarstjórninni í Borgarbyggð gagnvart þessu máli. Mig langar að forvitnast hjá hæstv. ráðherra hvort hann sjái fyrir sér að það sé tekið á svona málum í þessari áætlun sem hér liggur fyrir.