framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Í sjálfu sér er ekki tekið sérstaklega á þessu tiltekna máli í áætluninni. Við erum hins vegar að funda og ég hef fundað með fulltrúum sveitarstjórnar í Borgarbyggð út af þessu tiltekna máli sem er mjög alvarlegt. Þetta er mjög alvarleg staða og liggur þungt á sveitarfélaginu og við erum búin að kalla eftir tilnefningum í aðgerðahóp til að fara yfir málin og koma með raunhæfar lausnir til aðgerða til að bregðast við þessu. Samtalið hefur verið mjög gott og uppbyggilegt hingað til síðan ég tók við sem félags- og húsnæðismálaráðherra. Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega og höfum virkilega brugðist við með einmitt þessu sameiginlega verkefni okkar og Borgarbyggðar að setja af stað öflugan vinnuhóp til að vinna að lausnum.