158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:34]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég tel svo sannarlega að þetta sé mikilvæg leið. Að ná til fólks er að nálgast það á tungumáli þess, það er fyrsta snertingin, og síðan auðvitað að halda áfram með öll þau úrræði sem við höfum varðandi inngildingu. Þetta er auðvitað mjög mismunandi eftir sveitarfélögum. Sum sveitarfélög eru öflugri í þessu en önnur. En ég held að við höfum ekki gert mistök við að reyna að ná til fólks með því að vera með kynningarefni á öðrum tungumálum en íslensku. Það skiptir auðvitað máli að sveitarfélögin hafa mörg hver verið að gera mjög góða hluti sem má hrósa, það má hrósa því sem vel er gert. En það sem við mættum t.d. gera betur, og kemur fram í aðgerðaáætluninni, er að fá vinnumarkaðinn meira með okkur. Þetta hefur mikið verið rætt á vettvangi kjarasamninga og að fólk geti t.d. lært íslensku á vinnutíma.