158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:35]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Eins og ég lagði áherslu á þá höfum við öll einhvern veginn verið að hamast í þessum málum til að reyna að gera sem best og taka sem best á móti fólki sem hér ætlar að vera. Inngilding eða aðlögun? Við getum líka tekist á um hvort er réttara orð og hvað felst í hvoru fyrir sig.

Nú tengjast skólamálin þessu, við erum að tala um íslenskunám og við erum að tala um hvernig álagið er í skólastofunum og við höfum áhyggjur af niðurstöðum í PISA og þar fram eftir götunum, af öllum börnum, íslenskum sem erlendum, sem hér eru. Mig langar til að bera eitt undir hæstv. ráðherra því að það ber allt að sama brunni og þetta er allt sami málaflokkurinn. Fyndist hæstv. ráðherra koma til greina að setja eitthvert hámarkshlutfall erlendra innflytjendabarna, erlendra barna, inn í bekkina eins og hefur tíðkast sums staðar? Nú er Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, að fara að herða þetta, gera strangari kröfur þar um. Fyndist hæstv. ráðherra þetta koma til greina, að það yrði lögboðið hlutfall inni í bekkjunum hvað hámark varðar?