158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:38]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég fagna umræðu um þennan mikilvæga málaflokk fyrir okkur Íslendinga, sem eru innflytjendamálin í víðari skilningi. Í sjálfu sér væri hægt að vera dramatískur og harma að ekki mælist meiri áhugi hér í þinginu á umræðu um þetta en sem nemur mælendaskránni eins og hún horfir við okkur núna, enda er það algjört grundvallarmál að mínu mati fyrir framtíð okkar samfélags hvernig okkur helst á þessum málaflokki, þ.e. innflytjendamálum. Hann hefur bersýnilega á undanförnum árum og áratugum verið í ákveðnum ólestri, ef svo má segja, ákveðið stefnuleysi er sagt hafa ríkt, þ.e. að hér sé bara látið reka á reiðanum með það í hvað stefnir í sambandi við t.d. hlutföll innflytjenda á móti hlutföllum heimamanna hérna á Íslandi, í stað þess að móta einhverja framtíðarsýn sem á er byggjandi fyrir Ísland, íslenska þjóð og hvernig við ætlum að hátta lýðfræðinni að því marki sem við getum ráðið við hana til allrar framtíðar.

Stefnuleysi er orðið sem þar hefur verið nefnt. Einhver gæti sagt að þetta sé mun heldur stefna, ákveðin opingáttastefna, að í raun og veru segja bara komi þeir sem koma geta og sjá svo hvað gerist. Það er hin leiðin til þess að líta á þetta, að þetta sé búið að vera svona ákveðin misráðin stefna. Nú þegar svo er komið, þegar allur þessi fjöldi hefur streymt hingað og mun að óbreyttu á komandi tímum mögulega streyma hérna áfram. Við getum auðvitað ekkert vitað með vissu um það, við getum hins vegar horft í mannfjöldaspár, tekið mið af þeim. Þær eru með efri mörk, miðmörk og neðri mörk í sambandi við þann fjölda innflytjenda sem hingað kann að streyma. En síðan eru margvíslegar aðstæður sem breytast þannig að það hefur sannarlega áhrif. Við sjáum auðvitað núna að það hefur hægst á aðflutningi borgara innan úr EES-samstarfinu. Það þarf engan stjarneðlisfræðing til að velta fyrir sér orsökum þeirrar þróunar núna. Það er auðvitað mikið frost á íbúðamarkaði, byggingarmarkaði, og aðflutningurinn hefur náttúrlega í gegnum áratugina byggst að hluta til mjög á slíkum farandverkamönnum sem koma ýmist og fara eða setjast að varanlega. Þannig að það er lægð í því núna en ef maður sæi fyrir sér að hagkerfið tæki við sér að verulegu leyti að nýju þá myndi þetta allt falla mögulega í sama farið og verið hefur, kannski síðustu tíu árin, þar sem þetta hefur verið alveg sérstaklega geyst, í raun og veru hraðari þróun hér en víðast hvar á byggðu bóli í allri veröld, þ.e. hversu hratt hingað hafa streymt innflytjendur í hlutfalli við fjölda heimamanna.

Þetta er myndin sem við horfum á en síðan er spurningin hvernig stjórnvöld nálgast verkefnið, hvernig móttökunni er háttað, hvernig viðhorf mætir fólki, hvernig stjórnvöld móta sín viðhorf. Laga þau sitt samfélag að þörfum innflytjenda eða laga innflytjendur sig að þörfum samfélagsins? Þetta samspil endar á að vera spurning um hugmyndafræðilegar áherslur. Eins og orðræðan hefur verið hérna á síðustu árum hafa þessi tískuorð, um inngildingu og fjölbreytileika og styrk fjölbreytileikans, rétt eins og er hér í þessari áætlun, ráðið miklu um þessa orðræðu og um þessa nálgun stjórnvalda. Ég held reyndar að þetta sé aðeins að minnka eftir því sem meira raunsæi grípur um sig. Engu að síður sér maður í þessari áætlun — og það eru efnislegu athugasemdirnar sem, eftir að hafa lesið hvern stafkrók í þessari áætlun, maður leyfir sér að gera við nálgunina eins og t.d. er það umhugsunarefni að hér sé endilega sjálfstætt markmið, eins og hér er lýst, að jafna stöðu innflytjenda á vinnumarkaði á við stöðu innlendra á vinnumarkaði. Þetta sem sjálfstætt markmið finnst mér umhugsunarefni hvort þetta sé endilega eðlilegt sjálfstætt markmið stjórnvalda. Auðvitað eru menn á vinnumarkaði metnir eftir þeirra framlagi. En þegar stjórnvöld segja að við ætlum að, í raun og veru með ákveðnum aðgerðum, eins og maður skilur þetta, reyna að lyfta ákveðnum hópum væntanlega óhjákvæmilega á kostnað annarra hópa. Hvar endar slík nálgun ef menn ætla að fylgja henni eftir? Eða eru þetta bara orð á blaði? Og þá er líka spurning af hverju við setjum þessi orð á blað.

Þetta er auðvitað að mörgu leyti mikið rannsóknarefni. Auðvitað er það þannig í vissum skilningi, ef maður horfir bara á praktískan veruleika á íslenskum vinnumarkaði, að innlendir starfsmenn sem hérna eru uppaldir, tala íslensku, auðvitað og óhjákvæmilega eru þeir alltaf í allt annarri stöðu en innflytjendur sem hingað eru nýkomnir. Það er bara óhjákvæmilegt út frá eðli máls. Það er ekki endilega til marks um kerfisbundna óréttláta mismunun eins og sumir vilja vera láta og eins og stundum er látið að liggja, að þetta sé allt saman einhvers konar söguleg tilviljun, að það sé einhver mismunun á milli hópa á vinnumarkaði, þegar það eru bara mjög eðlilegar skýringar. Þannig að þegar stjórnvöld fara svo af stað að jafna það, með ýmsum undarlegum leiðum eins og eru raktar hérna í þessari áætlun, og kannski gefst tími til að koma inn á — hver áhrifin af því verða. Í raun og veru, eins og maður segir, þá eru þetta yfirleitt bara orð á blaði.

Það er sama með ráðningarferli hjá ríki og sveitarfélögum, þarna koma aftur inn klisjurnar: Vinnustaðir þar sem fjölbreytni ríkir. Það er talað um styrkinn í fjölbreytileikanum. Það hefur aldrei almennilega verið útskýrt hvað er átt við með t.d. styrknum í fjölbreytileikanum. Það getur auðvitað verið styrkur í því að innan ákveðins hóps hafi ákveðnir aðilar ákveðna styrkleika og aðrir aðra en að hann sé í eðli sínu styrkur í því að það sé fjölbreyttur hópur að verki frá mörgum mismunandi löndum, þar af leiðandi með ólíkan bakgrunn, jafnvel ólík tungumál; að það sé styrkur í eðli sínu er ekki aðeins bara innantóm klisja heldur er að mörgu leyti efnislega ekki rétt. Það er auðvitað líka styrkleiki í að fólk hafi sameiginlegt gildismat og sameiginlegt tungumál. Það er ákveðinn styrkur í einsleitninni að því leytinu til en það hentar ekki klisjukenndum frösunum í þessari umræðu.

Síðan er það fræðslan, að það sé einhvern veginn hægt að fræða fullorðið fólk út í hið óendanlega, að hið opinbera geti einhvern veginn frætt okkur út úr öllum mögulegum vanda, bara með því að setja auknar 20 millj. kr., 30 millj. kr. hér og þar í aukin fræðsluátök. Hérna er verið t.d. að leggja upp með að fræða fólk um samfélagslegan ávinning af jafnri stöðu íbúa óháð uppruna, fræða fólk um einkenni inngildandi samfélags og styrkleika fjölbreytni á vinnustöðum, að opinberu fé verði varið í að fræða m.a. Íslendinga um voðalega loftkennd pólitísk klisjukennd að hluta til ósannindi en í besta falli bara svona loftkenndar pælingar sem eru ekki hönd á festandi, að sé verið að verja opinberu fé í að fræða fólk um þetta.

Þar kem ég kannski svolítið að kjarna máls, sem ég er ánægður með að mér gefst tækifæri til að nefna innan þessa þrönga stakks sem mér er sniðinn, að viðhorf til innflytjendamála hafa mjög breyst. Alveg frá því að mælingar hófust á vegum hins opinbera frá 2017 hefur almenningur breytt um viðhorf gagnvart innflytjendamálum og innflytjendastefnunni. Ég tel skýringuna á því ekki vera að skyndilega blossi upp eitthvert óskilgreint og óskiljanlegt þjóðernishatur hjá venjulegu fólki eins og stundum er látið að liggja. Ég, vel að merkja, hafna því einmitt alveg að í þessari umræðu séu stóru breyturnar einhvers konar hatur, fyrirlitning eða fjandskapur í garð útlendinga eins og stundum margir gefa í skyn. Þetta eru mun frekar einmitt bara tilfinningar fólks, góðs fólks, vel að merkja, á víð og dreif um samfélagið þegar þau sjá að kannski öll þessi óraunhæfu markmið með innflytjendastefnu, þessar óraunhæfu hugsjónir sem voru notaðar til að réttlæta allt heila málið, hafa kannski ekki alveg reynst réttar. Og þegar þessi viðhorf breytast eru stjórnvöld að fylgjast með þessari viðhorfsbreytingu. Ég hnaut um lýsingar hér í þessu um að eftir því sem viðhorfin — og núna veit ég ekki hvort manni gefist tími til að finna þetta. En jú, hér er sem sagt talað um að niðurstöður þessara viðhorfsmælinga verði notaðar til að auka skilning á málefnum innflytjenda sem ætlað er að vinna gegn neikvæðum viðhorfum. Þannig að stjórnvöld eru í raun og veru með markviss markmið í þessari stefnu um að, eins og það er orðað, að vinna gegn neikvæðum viðhorfum. Viðhorfum til hvers? Ja, ég myndi lýsa því einfaldlega þannig að átt sé við neikvæð viðhorf til innflytjendastefnunnar. En það er aftur þessi trú, að bara með aukinni fræðslu (Forseti hringir.) sé hægt að telja almenning af því að innflytjendastefna síðustu ára hafi verið misráðin og ég tel það ekki raunhæft. (Forseti hringir.) Ég tel ekki að stjórnvöld eigi að verja fé sínu í það en verð því miður að láta staðar numið.