158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[14:56]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

sVirðulegur forseti. Nei, ég svara því nú neitandi að ég leggist gegn ýmsum þeim aðgerðum sem stjórnvöld geta gripið til til að gera aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi sem farsælasta. Auðvitað leggst maður ekki gegn slíku.

Ég bendi hins vegar á að þegar við erum, eins og í þessari aðgerðaáætlun, að koma á fót í raun og veru meiri háttar umfangsmiklu bákni innan ríkiskerfisins til að ná utan um málaflokk innflytjenda, að verja til þess fleiri milljörðum á næstu árum, fleiri tugum milljarða líklega ef maður tekur allt saman; koma á fót margvíslegum, flóknum og erfiðum aðgerðum til að ná utan um þetta verkefni sem er aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi — finnst mér tilefni til að benda á að þetta eru þau skref sem við þurfum að stíga til að mæta öllum þeim áskorunum sem hafa sannarlega flætt yfir samfélagið með þessari innflytjendastefnu.

Oft er látið eins og þetta sé allt mjög átakalaust, að fólk geti bara komið, aðlagað sig hratt að samfélaginu o.s.frv., að þetta gangi bara svona fyrir sig. Í næstu setningu er talað um að við þurfum að stunda eitthvað sem heitir inngilding, þ.e. að laga okkar samfélag að þörfum innflytjendanna í stað þess að gera frekar einfalda almenna kröfu um að innflytjendur lagi sig að okkar samfélagi. Það er kjarni málsins í mínum málflutningi.

Viðhorfið sem birtist í aðgerðaáætlunum sem þessum er grundvallarnálgun sem ég felli mig ekki alveg við. Í fyrsta lagi er hún ekki alveg raunsæ, t.d. þegar við tölum um íslenskunám fyrir útlendinga. Það hefur verið talað um það frá aldamótum að það þurfi að bæta það og auðvitað vilja allar ríkisstjórnir gera það. En það hefur ekki reynst raunhæft og ég óttast að það verði minna og minna raunhæft með hverju árinu sem líður af óbreyttri innflytjendastefnu. Það þarf að horfast í augu við veruleikann.

Svo í öðru lagi, þetta viðhorf um að Íslendingar hafi varið litlum fjármunum til að kenna innflytjendum (Forseti hringir.) en innflytjendur vilji læra tungumálið. Þetta gildir í einhverjum tilvikum en það er ekki Íslendingum að kenna hvernig komið er fyrir okkur með þetta. (Forseti hringir.) Þetta er í raun og veru tvískipt verkefni og við berum öll ábyrgð á þessu en þetta eru ekki bara Íslendingarnir sem eru nískir og letjandi við að kenna íslensku. (Forseti hringir.) Mér finnst þetta viðhorf ekki alveg ganga.