158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[15:05]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn á ný fyrir hennar umfjöllun um málið, að hún skuli a.m.k. taka þátt í umræðum hér í dag. Af því að það var nú hálfpartinn skorað á mig úr þessum ræðustól hér fyrir nokkru að spyrja hv. þingmann út í hennar afstöðu um eiginlegt mælaborð um innflytjendur þar sem m.a. kæmi fram t.d. umfang afbrota eftir t.d. upprunalandi, eins og systurflokkur hv. þingmanns í Danmörku hefur staðið fyrir að birt sé. Danir hafa í gegnum tíðina gert sér töluverðan mat úr slíkri tölfræði og notað hana til stefnumótandi vinnu þar í landi. Hér hefur nú um nokkurra ára skeið verið ákveðin umræða um svona mælaborð um innflytjendamál hérna á Íslandi. Ekki það, þegar ónefndir flokkar sem bera sína ábyrgð á hinni misráðnu útlendingastefnu síðustu ára gera of mikið úr nauðsyn svona mælaborðs má svo sem alveg hafa gaman af því. Þetta er auðvitað ekkert lykilmál eða kjarnamál. Þessi tölfræði liggur fyrir inni í kerfinu og það er hægt að taka ákvarðanir út frá þessu en þetta er engu að síður upplýsandi fyrir t.d. almenning. Ég spyr hvort hv. þingmaður styðji svona birtingu gagna eður ei vegna þess að mér þótti nú heldur hljóma eins og hv. þingmaður væri að gera ákveðna athugasemd við að maður hefði áhuga á þessu máli hérna rétt í upphafi þessarar umræðu.