framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Þessi tillaga að aðgerðaáætlun eða framkvæmdaáætlun veldur miklum vonbrigðum en kemur svo sem ekki alveg á óvart. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur hins vegar haldið því fram að undanförnu að ríkisstjórnin væri að ná áttum í þessum málum og að það stefndi í einhverjar aðgerðir sem máli skiptu. En þessi aðgerðaáætlun er fljótt á litið fyrst og fremst staðfesting á því að íslensk stjórnvöld gera sér í engu grein fyrir eðli og umfangi þess vanda sem hér er við að eiga. Það er í raun sorglegt, það er ekki hægt að nota annað orð yfir það, hversu barnaleg eða einfeldningsleg nálgun íslenskra yfirvalda er á þessi mál. Það er eins og menn forðist það viljandi að læra af reynslu annarra þjóða í þessum efnum. Það er eins og menn hafi einsett sér að endurtaka öll sömu mistökin og nágrannaþjóðirnar hafa gert og rökstyðji það meira að segja á sama hátt og þær þjóðir gerðu áður en mistökin urðu eins stór og þau eru orðin þar. Ef tími gefst til ætla ég að hafa nokkur orð um hversu gjörbreytt eðli innflytjendastraums er frá því sem áður var, hvort sem það á við um hælisleitendur eða aðra, og að þetta breytta eðli viðfangsefnisins kalli á aðrar aðferðir til að takast á við það. Ég ætla líka að ræða aðeins um umfangið ef tími gefst til en fyrst að ávarpa aðeins þá umræðu sem hefur átt sér stað hér um þetta tiltekna mál.
Hv. þm. Snorri Másson fór mjög vel yfir ýmis álitamál sem koma upp hér og er ástæða til að ítreka þau sum og bæta öðrum við. Í fyrsta lagi er ríkjandi eitthvert viðhorf sem er á þann veg að ef útlendingur kemur til Íslands til að vinna eða til að flýja stríð í einhvern tíma þá hljóti sá hinn sami að vilja verða Íslendingur. Þegar Íslendingar hafa flutt frá Íslandi í stórum hópum, eins og gerist stundum í efnahagsþrengingum, þá verðum við leið yfir því. Við lítum áfram á það fólk sem Íslendinga. Og hér í ræðustóli Alþingis er spurt: Hvað getum við gert til þess að þetta fólk, okkar fólk, vilji snúa aftur? En á dálítið yfirlætisfullan hátt er litið svo á að ef útlendingur dvelst hér um tíma hljóti hann að vilja verða Íslendingur og það eigi að aðstoða hann við það. Það er mikið rætt um tungumálakennslu og það er hluti af þessu viðhorfi sem skín í gegn í þessu máli, að við á Vesturlöndum, og ekki hvað síst hér á Íslandi, ímyndum okkur alltaf að hægt sé að kenna fólki að vera Íslendingar, vera öðruvísi en það er, hvort sem það fólk langar að verða Íslendingar eða ekki. Það er nefnilega bara fjöldinn allur af útlendingum hér sem gætu vel hugsað sér að vera hér áfram, gætu vel hugsað sér að njóta stuðnings hins opinbera á Íslandi, en hafa engan áhuga á að verða Íslendingar og hafa engan áhuga á að læra íslensku. Hér er fólk þar sem konurnar fengju ekki einu sinni að fara út til að læra íslensku. Hvernig á að bregðast við því? Með fræðslu? Með því að senda bækling inn á heimilið og útskýra hvernig hlutirnir ganga fyrir sig á Norðurlöndum og að menn skilji þetta ekki alveg þarna fyrir sunnan? Telur einhver að það virki raunverulega? Er eitthvað sem bendir til að það hafi virkað hér eða annars staðar? Nei, auðvitað ekki. En það er haldið áfram að nálgast þetta á svona einfeldningslegan hátt.
Um leið er auðvitað fólk sem flytur hingað og elskar Ísland, langar að vera Íslendingar og leggur sig fram við það. Við tökum vel á móti slíku fólki og finnst frábært þegar menn eru að leggja það á sig að læra þetta erfiða tungumál okkar. En það er ekki hægt að nálgast þetta með þeim hætti að ef menn aðlagast ekki samfélaginu þá sé það okkur að kenna. Fólk sem kemur hingað, eins og er nú aldeilis búið að ræða undanfarna daga, jafnvel fyrst og fremst í þeim tilgangi að njóta stuðnings íslenskra skattgreiðenda, íslensks almennings, hugsar sér ekkert að vinna hér eða leggja neitt til samfélagsins, hugsar sér alls ekki að læra tungumálið en gerir miklar kröfur, er kannski búið að kaupa ferðina með fyrirheitum um að eitt og annað verði gert fyrir það hér — það er undarlegt að leggja það að jöfnu við einhvern sem langar raunverulega að verða Íslendingur, hætta að vera þeirrar þjóðar sem hann áður var og fá íslenskan ríkisborgararétt. Þessi ruglingur birtist m.a. í því hvernig ríkisborgararétti er úthlutað hér. Það voru fréttir um það á vefmiðlinum Nútímanum að hópar frá Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku væru mun líklegri til að fá ríkisborgararétt hér en aðrir hópar útlendinga. Þetta þykir mér skjóta skökku við og vekja ýmsar spurningar. Allt þetta vekur margar spurningar en þegar menn eru jafnvel feimnir við að halda utan um tölfræðina verður erfitt að taka skynsamlegar ákvarðanir.
Það er í raun undarlegt hvernig menn vaða áfram í blindni í þessum málaflokki og nálgast hann fyrst og fremst út frá umbúðunum, út frá frösunum. Allt í einu mátti ekki lengur tala um aðlögun sem þótti þó sjálfsagt fyrir ekkert svo löngu síðan þegar bent var á að þeir sem ætluðu að setjast hér að þyrftu að aðlagast samfélaginu. Nú er það einhvern veginn orðið óviðeigandi og fundið var upp orðið inngilding sem er einmitt útskýrt þannig, eins og hv. þm. Snorri Másson nefndi hér áðan, að samfélagið sem tekur á móti fólkinu eigi að aðlagast þeim sem tekið er á móti. Þessu 326.000 manna samfélagi Íslendinga á eyjunni sinni er ætlað að aðlagast 100 eða 200 ólíkum þjóðum og skólakerfið er eftir því. Heldur einhver í alvöru, hvað sem líður öllum yfirlýsingum og frösum, að það sé raunhæft fyrir 330.000 manna þjóð eða svo að kenna í grunnskólum á 100 tungumálum? Auðvitað er það ekki raunhæft og við sjáum afleiðingarnar. Við erum hér með dýrasta grunnskólakerfi í heimi og einhvern lakasta árangur nokkurs Evrópuríkis.
Menn þora ekki einu sinni lengur að aðlaga þá sem koma. Þetta er eflaust að einhverju leyti afleiðing af því að menn telji það á einhvern hátt setja okkur á hærri stall en aðra ef við gerum kröfu um aðlögun. Það er alls ekki svo. Það er einmitt á hinn veginn. Það felur í sér ákveðið yfirlæti að gera ráð fyrir því að okkar menning sé ekki bara ein af mörgum heldur séum við komin yfir menningarstigið. Við séum komin á eitthvert æðra stig þróunarinnar þannig að þetta sé bara spurning um að leyfa öllum hinum að þróast og þá muni þeir þróast á sama hátt og við. Þetta virkar ekki þannig í raun. Menningarheimarnir eru mjög ólíkir og það gengur mjög misvel fyrir fólk úr ólíkum menningarheimum að aðlagast hér. Sumum gengur mjög vel og hafa engar fréttir borist af nokkrum einustu vandamálum áratugum saman. Sumum gengur mun verr og við sjáum daglega fréttir af því hversu illa gengur með aðlögunina. En við leysum þetta ekki með heilum bæklingi um framkvæmdaáætlun sem byggir bara á einhverri hugmyndafræði og frösum sem fyrir löngu hafa reynst vera úreltir og ógildir.