framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir ræðu sína. Mig langar að spyrja, eins og ég spurði hv. þm. Snorra Másson, út í þessa aðgerðaáætlun sem felur í sér áætlaðan kostnað til að mynda við íslenskunám og notkun íslensku, að það renni 2,5 milljarðar í það á árunum 2026–2029. Hv. þingmaður sagði áðan að ekki allir sem hingað koma vilji verða Íslendingar eða aðlagast íslensku samfélagi en bætti svo við að sumir vilji það. Er hv. þingmaður mótfallinn því að ríkið leggi til eitthvert fjármagn til að auka íslenskukennslu fyrir þá sem hingað koma? Er þingmaðurinn alfarið mótfallinn ríkisafskiptum af því tagi eða telur hv. þingmaður að ríkið megi, geti eða jafnvel eigi — kannski gengur hv. þingmaður ekki svo langt að segja: eigi, en telur þingmaðurinn að það geti verið hluti af því sem ríkið leggur til til þess að hjálpa fólki að aðlagast samfélaginu, ef það vill það, að auka aðstoð eða íslenskukennslu? Það er gert, eins og við ræddum um áðan í þessum sal, t.d. í Danmörku og í Finnlandi eru 26 sinnum fleiri fríar kennslustundir í finnsku en við erum með hér í íslensku. Hvað finnst hv. þingmanni um þessa aðgerð?