158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[15:30]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Góð og gild spurning en hún krefst lengri tíma en þessara tveggja mínútna sem ég hef. Ég hefði skráð mig í aðra ræðu m.a. til að ræða þetta ef það væri kostur á því. Það er mjög margt sem þarf að huga að sem mér finnst ekki nógu vel hugað að í þessu þó að ég viðurkenni að eitt og annað varðandi vinnumarkaðinn er til bóta í þessari áætlun eða þess virði að vinna með áfram. En í tengslum við áhrif á vinnumarkað þá þurfum við líka, eins og ég gat um í ræðu minni, að líta til þess hvaðan og á hvaða forsendum fólk kemur hingað. Ég minnist þess að hafa verið í tíma í stjórnmálafræði í Kaupmannahafnarháskóla seint á síðustu öld og þar var verið að fara yfir reynslu Dana af þessum málum. Þar kom einmitt fram að þá þegar var mikil atvinnuþátttaka meðal Pólverja í Danmörku, jafnvel meiri en Dananna sjálfra. Svo var svona listi yfir hin ólíku upprunaríki og meðal sómalskra karlmanna var atvinnuþátttaka 2% og skilaboðin voru þessi: Ef við ætlum að fara í einhverjar ráðstafanir varðandi tengingu innflytjendamála og vinnumarkaðarins þá þurfum við að gera okkur grein fyrir þessum mikla mun og við þurfum líka að gera okkur grein fyrir áhrifum á velferðarkerfið. Ég myndi hvetja sósíaldemókrata á Íslandi til þess, eins og ég hef reyndar gert alloft áður, að líta til flokkssystkina sinna í Danmörku. Þar var það ekki hvað síst bók dansks þingmanns, Mattias Tesfaye, múrara, upprunninn í Eþíópíu, sem breytti því hvernig sósíaldemókratar nálguðust þessi mál. Þeir skiptu frá stefnu sem hafði ekki virkað í 40 ár og tóku upp það sem sumir kalla hörðustu útlendingastefnu af evrópskum flokkum, en það var einmitt af því að þeir leituðust við að læra af reynslunni, frú forseti, og ég held að Íslendingar gætu vel lært af reynslu Dana og ekki hvað síst kratanna.