framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.
Frú forseti. Bara til að klára þetta með íslenskukennsluna. Eins og ég gat um áðan þá er ekkert nema gott um það að segja að gefa þeim sem hafa áhuga á því að læra íslensku færi á því. Og ef menn ætla að vera í starfi, til að mynda að annast börn á leikskólum eða eldri borgara á hjúkrunarheimilum, þá ætti að gera kröfu um að fólk kunni íslensku og að þeir sem hugsa sér að fara í þau störf læri hana og kennslan sé aðgengileg. Það sem mér hefur hins vegar þótt vanta upp á er að menn líti á heildarmyndina, því ég er búinn að heyra þetta tal um íslenskukennsluna hérna í þessum sal, a.m.k. átta ár. Þetta var mikið rætt hjá síðustu ríkisstjórn þegar vöxturinn var sem mestur. Við þurfum bara að taka á þessu með því að auka áherslu á íslenskukennslu. Og alltaf kom þetta ár eftir ár. Nú aukum við áhersluna á íslenskukennslu og þá leysum við málið. Svo leystist málið ekki neitt. Það bara hélt áfram að vaxa og vandinn hélt áfram að vaxa.
Þótt það sé vissulega kostur fyrir hagkerfið að hafa aðgang að vinnuafli á ákveðnum sviðum þegar skortur er á því, þá megum við samt ekki fara að reka hagkerfi þannig að við verðum háð því að þurfa alltaf að fjölga meira og meira á þeim markaði. Við þurfum að byggja fleiri íbúðir af því að það er komið svo mikið af útlendingum og þá þarf að flytja inn fleiri útlendinga til að byggja þær íbúðir og þá þarf enn fleiri útlendinga o.s.frv. Það er ekki hægt að reka hagkerfi eins og píramídasvindl. Á einhvern hátt tókst okkur hérna áratugum saman að byggja blokkir, brýr, vegi, göng, virkjanir o.s.frv. án þess að þurfa að flytja inn allt vinnuaflið. Og það er áhyggjuefni að á sumum stöðum sé farið að ganga á lagið, að það sé jafnvel einn íslenskur maður með menntun á því sviði sem þar er, iðnmenntun til að mynda, og svo séu allir hinir (Forseti hringir.) innflutt vinnuafl og Íslendingarnir sem sækja um vinnuna fá hana ekki af því að það er einfaldara eða ódýrara að ráða útlendinga í störfin.