158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026--2029.

102. mál
[16:14]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir áhugaverða umræðu sem hefur átt sér hér stað og ég ætla nú að fara aðeins inn á þá hluta málsins sem hafa fengið talsverða athygli í umræðunni. Ég tek að sjálfsögðu undir það að íslenskan er lykillinn að samfélaginu en mér finnst ég líka vera að hlusta á einhvers konar markmið og ræður um eitt og hið sama og við höfum hlustað á núna í dálítið mörg ár, líklega áratug í það minnsta, og við frekari skoðun á málinu sýnist manni því miður svona við fyrstu sýn að þetta sé örlítið meira af því sama. Það er að við erum með fullt af fallegum orðum um markmið, um mikilvægi íslenskunnar og þess að innflytjendur hér læri íslensku.

Við erum kannski með eitthvað aðeins minna af því, herra forseti, hvernig við ætlum að eiga við þann hóp innflytjenda sem hefur bara akkúrat engan áhuga á að læra íslensku. Við verðum að vera hreinskilin hér í þessum sal hvert við annað. Það er allstór hópur hér í samfélaginu sem hefur akkúrat engan áhuga á að læra íslensku. Þeim standa til boða íslenskunámskeið og hafa staðið núna um alllangt skeið víðs vegar um landið, bæði í framhaldsskólum, ýmiss konar þekkingarmiðstöðvum o.s.frv., og hlutfallið sem hefur sótt sér það nám er kannski bara alls ekkert ásættanlegt og hefur lítið verið að þokast upp undanfarin ár.

Þá er eðlileg spurning sú, herra forseti: Með hvaða hætti er þessi framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda að fara að ná utan um það verkefni? Það er stóra verkefnið. Ég hygg að þeir innflytjendur sem hafa einlægan áhuga á að læra íslensku, og ég hef kynnst mörgum svoleiðis og unnið með mörgum þannig, biðji jafnvel bara vinnufélagana um aðstoð auk þess að sækja einhver námskeið. Þeir biðja mann um að tala við sig á íslensku, þó að það þurfi auðvitað að nota einhver miðlunartungumál þar á milli oft og tíðum, ensku í langflestum tilfellum.

En svo er bara hinn hópurinn og ég hef unnið með mörgum, herra forseti, og á verksvæði með mörgum, herra forseti, sem hafa akkúrat engan áhuga á að læra íslensku. Og þá er ég ekki einu sinni farinn að tala um þau störf þar sem íslenska ætti að vera skilyrði, þar sem ætti bara að vera hreinlega að mati þess sem hér stendur íslenskupróf einhvers konar til að prófa eða árangursmeta einhverja lágmarksfærni í íslensku. Þá er ég að tala um vinnustaði eins og sjúkrahús, heilsugæslu, leikskóla, grunnskóla, dvalarheimili, hjúkrunarheimili og ég gæti eflaust haft þennan upplestur eitthvað lengri. En eftir sem áður stendur þeirri spurningu ósvarað í þessari framkvæmdaáætlun hvernig við ætlum að fást við þann hóp sem hefur alls ekki neina fyrirætlan um að læra tungumálið. Og hugsanlega berum við sem þjóð þar nokkra sök því að við erum jú flest hver fljót að bregða fyrir okkur enskunni í sjoppunni eða búðinni eða hvar sem við erum stödd. Við erum kannski ekki að ýta nógu þétt bara sem almenningur undir það að fólk tileinki sér íslenskuna. Fyrir vikið má kannski segja að þetta sé svolítið, eins og ég sagði áðan, meira af því sama, fullt af fallegum orðum. Og það er talað um mælaborð sem er mikið tískuorð þessi misserin. Þá veltir maður fyrir sér: Er ástæða til að ætla að það mælaborð sýni einhverja aðra niðurstöðu en til að mynda Danir fengu út úr sinni allviðamiklu rannsókn á því hvernig ólíkum hópum innflytjenda reiðir af í dönsku samfélagi? Það kann að vera einhver stigsmunur en eðlismunur er það varla. Síðan hefur hugtakið inngildingu borið aðeins á góma hér. Ég ætla svo sem ekki að gera það að sérstöku umfjöllunarefni að öðru leyti en því að það er ákaflega mikilvægt að allir sem taka sér þetta hugtak í munn geri sér grein fyrir hvað það þýðir því að oft og tíðum þykir mér þetta hugtak vera notað rangt.

Þetta þýðir að við ætlum að aðlaga okkur, herra forseti. Ég sæi það gerast, svo að við tökum eitthvert dæmi í stærra samhengi, ef hér yrðu einhverjar hamfarir og 200.000 Íslendingar flyttu til Frakklands, að það yrði sérstakt inngildingarátak í Frakklandi fyrir Íslendinga. Mér er það í það minnsta verulega til efs. Aðalatriðið hlýtur að vera, sama hver er að flytja, til hvaða lands, að viðkomandi reyni að aðlaga sig því landi sem hann kaus að flytja til.

Svo langar mig hér, bara rétt í lokin, að minna á að við þurfum ekki einu sinni að finna upp hjólið til að fara í stórátak í þessum málaflokkum. Geri ég þá hér, eins og hefur verið gert hér nokkrum sinnum, að vísa til danskra jafnaðarmanna því við höfum nú stundum, til að mynda þingmenn úr þeim flokki sem ég er í, Miðflokknum, fengið á okkur þegar við höfum gagnrýnt útlendingastefnu hér undanfarin ár alls konar orð, uppnefni og stimpla, sem ég hygg þó að séu eitthvað að minnka því að ég held að málflutningur Miðflokksins sé farinn að ná í gegn.

Ég held að almenningur sjái orðið að það sem við vorum að segja fyrir nokkrum árum, eða eiginlega alveg frá 2017, 2018, hefur allt staðist tímans tönn og við erum í hænuskrefum að þoka umræðunni á einhvern þann veg að hún sé meira í takt við raunveruleikann. Ég held nefnilega að það sé ekki hægt að segja að þeir sem tala með þeim hætti að það sé hægt að finna einhver tengsl við danska jafnaðarmenn séu komnir langt út fyrir einhverjar línur í sinni umræðu, langt í frá.

Þeir eru einfaldlega að reyna, herra forseti, og það kom hér fram í einhverri ræðunni, þeir eru einfaldlega að reyna einmitt að koma í veg fyrir að Íslendingar og íslensk þjóð geri sömu mistökin og nágrannaþjóðir okkar hafa gert á undanförnum árum og eru núna að súpa seyðið af heldur horfi miklu frekar til þess hvað þeir gerðu, hverju þeir eru að breyta og ég ítreka aftur, herra forseti, að horfa kannski sérstaklega til Dana í þeim efnum.

En eftir stendur þessi spurning: Hvernig tekur þessi framkvæmdaáætlun á þeim þúsundum innflytjenda á Íslandi sem hafa ekki sýnt enn þá í það minnsta neinn vilja eða áhuga á að læra íslensku?