158. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2026.

höfundalög.

108. mál
[16:33]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að gera athugasemd við það hjá hv. þingmanni að þetta er ekki eingöngu það, þó að það skipti miklu máli að standa vörð um menningarstarfsemi eða menningarverðmæti. Þetta snýst auðvitað um þann sjálfsagða rétt að höfundar sæti því ekki að það sé verið að stela af þeim vöru frekar en af öðrum sem stunda viðskipti og eiga hana. Það er því réttlætismál að það sé samræmi þarna á milli.

Hvað varðar refsiramma í öðrum málaflokkum hjá ólíkum ráðherrum þá held ég að ýmislegt komi þar til greina og ég held að ráðherrar séu með vakandi auga fyrir því. Við erum líka með réttarfarsnefnd sem gætir að því mjög víða að það sé samræmi á milli refsiramma. Hér er eingöngu verið að ræða um það að bera saman efnislega vöru og óefnislega vöru og að viðurlög við þjófnaði á því séu lögð að jöfnu. En ég tek það aftur fram, af því að mér finnst það líka skipta máli, að þetta beinist ekki gegn þeim einstaklingum sem tilfallandi hafa verið að hala niður kvikmyndum, myndum, fá sér ódýra áskrift að íþróttakappleikjum eða annað. Ég held að gegn því sé miklu betra að við eigum bara almenna umræðu um að þetta sé réttur einhvers, þetta sé eign einhvers og að það verði gert með vitundarvakningu. En það er full ástæða til þess, þegar þetta er í mjög umfangsmiklum mæli, að standa vörð um þetta og gefa þau skilaboð að þetta verði ekki liðið.