ástæða afsagnar mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ekkert sem ég sagði hér í fyrri ræðu minni er eitthvað sem gögn styðja ekki við. Þetta hefur verið staðfest og ég ætla að minna ráðherra á það að hér liggja gögn að baki. Kjörtímabilið er ekki einu sinni hálfnað en skipan ríkisstjórnarinnar tekur miklum og ítrekuðum breytingum í kjölfar hinna ýmsu hneykslismála sem dunið hafa yfir ríkisstjórnarflokkana. Ríkisstjórnin var ekki orðin þriggja mánaða gömul þegar þáverandi mennta- og barnamálaráðherra sagði af sér vegna þrýstings greinilega frá valkyrjunum. Síðan þá hafa fjórir aðrir einstaklingar gegnt því embætti sem er gott dæmi um þann hringlandahátt sem einkennt hefur störf þessarar ríkisstjórnar. Framkoma stjórnvalda í þessum málum hefur grafið undan trausti almennings. Það er lágmarkskrafa að ríkisstjórnin sýni gagnsæi í sínum störfum, sýni ábyrgð og segi satt og rétt frá. (Forseti hringir.) Ef ráðherrar geta ekki veitt almenningi skýr og sannfærandi svör um mál þá eiga þeir að segja af sér (Forseti hringir.) og ef ríkisstjórnin ætlar að vinna eftir þessu siðferði þá segi ég: Nú er nóg komið. Takið ábyrgð á ykkar störfum og byrjað á að segja sannleikann. (Forseti hringir.) Það er lágmarkskrafan hér í þessu húsi. Íslenska þjóðin á skilið (Forseti hringir.) ráðherra sem segja satt. Hún á skilið betri ríkisstjórn en þetta.