ástæða afsagnar mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Hér talar stóri sannleikur Sjálfstæðisflokksins. Talandi um þrautagöngu menntamálaráðuneytisins, að þar hafi verið fjórir í embætti eftir að hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir vék til hliðar, það er rangt. Hér á að segja satt í ræðustóli Alþingis. Hér í fyrri fyrirspurn tínir hv. þingmaður og hefur geð í sér til að láta að því liggja að Flokkur fólksins hafi ekki átt að fá stuðning eins og aðrir stjórnmálaflokkar fjárhagslega. Það er rangt og það eru öll gögn um það. Þannig að hv. þingmaður, ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hæstv. ráðherra að gæta orða sinna.)
— eins og hún hefur hreinlega verið að gera.