árangur í orkuskiptum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta upp. Fyrst um bílaleigumálefnin almennt þá sé ég eftir þessum fjármunum. Ég held að þessum 10 milljörðum hafi ekki verið vel varið, ég tel að afraksturinn sé rýr og að þessir fjármunir hefðu betur verið nýttir með öðrum hætti.
Svo spyr hv. þingmaður með almennari hætti: Telur hæstv. ráðherra að farið hafi verið vel með peninga? Stutta svarið við því er nei. Ég tel að það hafi alls ekki verið farið vel með peninga hérna á undanförnum árum. Það er svolítið eins og Sjálfstæðisflokkurinn kunni ekkert nema að eyða peningum og hækka skatta og gjöld þannig að það er svolítið það sem við höfum verið að horfa upp á og þess vegna erum við loksins að fara í alvöruútgjaldaaðhald í ríkisfjármálum. Við erum að fara niður í u.þ.b. 30% af vergri landsframleiðslu. Við erum í markvissri vinnu við að halda aftur af fjölgun stöðugilda hjá ríkinu; þeim fjölgaði um sirka 800 á ári 2024 og 2025. Sú fjölgun hefur dregist stórkostlega saman. Þeim fjölgaði um 100 núna á fyrsta ári þessarar ríkisstjórnar um leið og við fórum í mjög markvissa vinnu við aðhald í ríkisútgjöldum og þetta gildir um loftslagsmálin líka: 10 milljarða gjafir til bílaleigufyrirtækja eru arfaslæm ráðstöfun á fjármunum sem skilaði allt of litlu.
Þannig að stutta svarið við þessu er nei, það var ekki farið nógu vel með peninga. Einmitt þess vegna erum við að forgangsraða mjög kirfilega loftslagsaðgerðum þannig að við setjum peninga í þau verkefni sem skila mestum loftslagsávinningi á hverja krónu. Sú vinna gengur almennt vel og ég hlakka til samstarfs við hv. þingmann um þessi mál og frekari samtala hér í þingsal og víðar um loftslagsmálin.