158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

árangur í orkuskiptum.

[13:53]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Fjárfestingarstuðningur í þágu loftslagsmála og orkuskipta getur verið mjög þjóðhagslega arðbær og skynsamlegur fyrir okkur öll og fyrir þjóðarbúið. Við erum einmitt að forgangsraða þeim aðgerðum sem eru til þess fallnar að styðja við samkeppnishæfni á Íslandi, styðja við áfallaþol. Það er til mikils að vinna að draga hraðar úr losun frá vegasamgöngum, spara gjaldeyri, gera heimili og fyrirtæki óháðari sveiflum á t.d. alþjóðlegum orkumörkuðum sem við ráðum ekkert við. Varðandi hótanir á blaðamannafundi þá finnst mér það pínu kúnstug túlkun. En það sem ég var kannski að vísa þar til er að hér var árið 2020 samþykkt á Alþingi af þingmönnum hvers einasta flokks í þessum sal, líka af þingmönnum Miðflokksins, staðfesting á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingu á bókun 31 við EES-samninginn þar sem Ísland var að undirgangast skuldbindingar til að draga mjög hratt úr samfélagslosun. Þetta var samþykkt hér í þessum sal. Þetta er orðið hluti af EES-samningnum og því geta fylgt fjárhagslegar skuldbindingar (Forseti hringir.) ef við stöndum okkur ekki í stykkinu. Ég hvet þingmenn úr öllum flokkum til að reyna að kannast við þetta sem hér var samþykkt. (Forseti hringir.) Nú er það bara sameiginlegt verkefni að greiða úr þessu og ná árangri. Þetta þarf ekki að þýða að fjárhagslegur baggi lendi á skattgreiðendum.