aðdragandi afsagnar ráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn. Ég hef í rauninni engu við að bæta nema að það er rétt, menntamálin eru komin í algjöran forgang hjá hæstv. ríkisstjórn og það er þess vegna sem ég sit í því embætti núna og mér þótti miður að víkja frá þeim stað sem ég var á áður. En ég sé ekki og ég get ekki komið auga á það sem hv. þingmaður bendir á, engan veginn. Hlutirnir æxluðust þannig að hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, sendi frá sér bréf til allra fjölmiðla þann 8. janúar síðastliðinn og ég hvet hv. þingmann bara til að kynna sér það.