svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum.
Virðulegi forseti. Ég vil ítreka óskir mínar til forseta um að forseti stigi hér fram og ræði við ráðherra og þingmenn um að þeir upplýsi og svari spurningum sem til þeirra er beint. Því er enn ósvarað hvernig liggur í þessu máli og ég ætla bara að minna á það að við erum ekki að spyrja um upplifanir. Ég hef engan áhuga á að vita eitthvað um upplifanir hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, bara engan. Ég vil heyra sannleikann og hæstv. ráðherra er algjörlega fyrirmunað að segja sannleikann hér í ræðustóli Alþingis okkar Íslendinga. Finnst hæstv. ráðherra í alvörunni ekkert skrýtið að sagt sé að fyrrum aðstoðarmaður fyrrum barna- og menntamálaráðherra og valkyrjurnar hafi tekið þessa ákvörðun? (Forseti hringir.) Og hér kemur hæstv. ráðherra og talar um að taka utan um hæstv. ráðherra, (Forseti hringir.) að hún hafi gert það á sjúkrabeði hans. Þetta hefur verið kalt faðmlag, er ég hrædd um.