158. löggjafarþing — 11. fundur,  24. sept. 2026.

Staða barna með íslensku sem annað mál í leik- og grunnskólum.

[14:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Hér ræðum við eitt af þeim málum sem hæstv. ráðherrar og margir aðrir hv. þingmenn nálgast með því að tala fyrst og fremst fallega um hlutina og ræða draumsýn án þess að víkja í miklu að því með hvaða hætti eigi að láta hana rætast. Jú, það eru nefndir hlutir eins og að það þurfi að fjölga kennurum sem eru sérhæfðir í að kenna krökkum með íslensku sem annað tungumál. En það er líka draumsýn. Ísland getur ekki verið menntamiðstöð fyrir allan heiminn. Það er ekki og verður aldrei raunhæft að kenna á 100 tungumálum í íslenskum grunnskólum. Það hefur verið reynt og við sjáum afleiðingarnar, ekki bara fyrir erlendu börnin heldur fyrir þau íslensku líka, og hefur tekist hið ótrúlega; að reka hér líklega dýrasta grunnskólakerfi í heimi með hinum lakasta árangri þróaðra ríkja. Þetta kallar á eitthvað meira en nýja draumsýn og umræðu um það hvað það væri fallegt ef hlutirnir yrðu einhvern veginn. Við verðum að líta á hvað er raunhæft. Í heiminum eru töluð yfir 7.000 tungumál og þá eru ekki taldar með alls konar mállýskur. Getum við kennt á 7.000 tungumálum? Ég geri ekki ráð fyrir að nokkur haldi því fram. Aðrar þjóðir hafa ekki gengið eins langt og Íslendingar í því að reyna hið ómögulega í þessu efni. Íslenskir grunnskólar þurfa að vera til þess fallnir að kenna íslenskum börnum eins vel og kostur er. Aðrar ráðstafanir er svo hægt að gera til hliðar við það en ekki rugla öllu saman og valda því að skólakerfið verði vonlaust fyrir alla.