arðgreiðslustefna Landsvirkjunar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir síðari spurninguna. Sambærileg setning hefur að vísu verið í arðgreiðslustefnu Landsvirkjunar og þar hefur hún verið túlkuð með þeim hætti að arðgreiðslustefnan sé hámarksarðgreiðslustefna. Sú stefnubreyting sem á sér stað núna er að arðgreiðslustefnan er meira almennt viðmið. Frávikin sem myndu eiga sér stað myndu alltaf eiga sér stað á grundvelli þess, t.d. eins og fjárfestingarplön fyrirtækisins gerðu ráð fyrir meiri fjárfestingum og þar af leiðandi minni arðgreiðslum en stjórn telur heppilegt og arðgreiðslustefnan segir til um.