Hagstofa Íslands og opinber hagskýrslugerð.
Virðulegur forseti. Það sem ég vildi kannski sagt hafa í fyrra andsvari mínu er hvort það sé hafið yfir allan vafa að fjármála- og efnahagsráðuneytið muni eftirleiðis sjálft sjá um spár, m.a. um þróun komu erlendra ferðamanna og launavísitölu, sem Hagstofan hefur hingað til spáð og er ekki hluti af opinberri útgáfu Seðlabankans, og fleiri stærðir. Ætlunin er sem sagt að ráðuneytið muni framvegis áætla þessar tölur með hliðsjón af spá Seðlabankans. Ég er bara að velta fyrir mér hvort það sé nokkur hætta á að það komi upp einhver trúverðugleikavandi, vildi ég sagt hafa, varðandi vinnu fjármálaráðuneytisins að þessu leyti, ef fjármálaráðuneytið ætlar sjálft að leggja til grundvallar forsendur fyrir sinni tillögugerð til ríkisfjármálanna sem er lögð fyrir Alþingi. Það er bara þetta sérstaklega sem mér þætti vænt um að hæstv. forsætisráðherra gæti aðeins fjallað um af því að bæði sjá betur augu en auga í þessum efnum og svo er líka svolítið ankannalegt að ráðuneytið sem ætlar að vinna að sinni stefnumörkun búi sér til forsendurnar sjálft.