158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[15:32]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra út í þetta samráð sem fór fram í skötulíki og gerð er grein fyrir í frumvarpinu. Það sem vekur athygli mína er að þetta mál hafi ekki verið sent í neitt samráð nema það sem hér er greint, sem er innra samráð ráðuneyta, og þess utan var haft samráð við fjármála- og efnahagsráðuneytið og Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. En í ljósi þeirra breytinga sem hér um ræðir hafi ráðherra talið að áform um lagasetninguna, eða drög að frumvarpi, mætti ekki kynna í samráðsgátt þar sem slíkt gæti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna.

Ég hlýt að spyrja í fyrsta lagi: Hvað kom út úr samráðinu við Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun? Og hins vegar: Hvaða hugmyndir hefur hæstv. ráðherra um meðferð þessa máls í þinginu ef hann (Forseti hringir.) heldur að þetta mál verði afgreitt þannig að það geti ekki haft áhrif á og leitt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna? Hefur hæstv. ráðherra einhverjar sérstakar hugmyndir um flýtimeðferð þessa máls?