158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er einmitt einhver furða þegar kemur að t.d. gildistökuákvæði þessa máls. Ég komst ekki yfir það í ræðu minni en ágætt að hv. þingmaður nefndi það. Það eru nokkuð svona óljós ákvæði um gildistökuna en ég held að það megi draga þá ályktun að ætlunin sé að láta þetta frumvarp gilda með einhverjum hætti afturvirkt. Það finnst mér þurfa að skoða alveg sérstaklega, hvort það standist. Ég meina, það stenst náttúrlega yfirleitt ekki afturvirkt. En það hvernig þetta er útfært er eitthvað furðulegt og ég bendi á að umfjöllun í greinargerð er hálffátækleg um þetta en þar er hnoðað saman tveimur ákvæðum í frumvarpinu. Þetta þarf a.m.k. að skoða og þetta er furðulegt.

Hv. þingmaður nefnir líka atvinnuhúsnæði. Ég kann ekki skýringu á því hvernig það snertir þetta allt saman vegna þess að markmiðið virðist einhvern veginn vera að tryggja íbúðarhúsnæði leigjenda sérstaklega. Þannig að það skýtur skökku við að atvinnuhúsnæði sé þarna líka og þetta þarf allt saman að skoða. En ég bara velti fyrir mér hvort hæstv. ráðherra hafi litið til útlanda. Margir fá alltaf glýju í augun yfir því sem er að gerast í útlöndum. Af hverju hafa menn ekki litið til útlanda bara í þessu sambandi og séð hvaða áhrif leigubremsur almennt hafa haft á húsnæðismarkaðinn? Það er hvergi hægt að vísa til góðs árangurs í útlöndum af slíkum höftum.