húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Nei, ég átta mig ekki á því hvernig meðalhófið er virkjað hér. Þó nefndi ég ákvæði eða ummæli hér um þessi leigufélög um að það verði heimild til þess að hækka leigufjárhæð vegna verulegrar hækkunar á rekstrarkostnaði vegna hins leigða. Gott og vel. Ég myndi segja að þetta væri nú kannski sjálfsagður hlutur. Að sjálfsögðu fer leiguverð að einhverju leyti eftir rekstrarkostnaði fasteignarinnar en það er svo sem einhver ádráttur um það. En á sama tíma eru sett einhver skilyrði við því að þessi heimild verði nýtt og einhvers konar mat einhverra á því hvað er sanngjarnt og þvíumlíkt. Þetta er a.m.k. ekki, finnst mér, til velfarnaðar fallið ef menn hafa áhuga á að hafa löggjöfina sem skýrasta af því að það er mjög mikilvægt að húsaleigulög séu skýr og afdráttarlaus vegna þess að það reynir svo oft á þau og húsaleigulög varða mikilsverð réttindi manna. Það hefur farið mikið púður í það í íslenskri lögfræði að búa svo um hnútana að bæði lög um fjöleignarhús og húsaleigulög séu þannig að hægt sé að byggja á þeim og leysa úr ágreiningi fljótt og skilmerkilega og lögin hafa verið skýr og skilmerkileg. Ég óttast að þetta frumvarp, nái það fram að ganga, rýri mjög skýrleika húsaleigulaga.