158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:10]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður kom inn á í ræðu sinni að hún teldi að frumvarpið myndi hafa gríðarlega neikvæð áhrif á markaðinn, bæði uppbyggingu á húsnæði og vilja verktaka og fjárfesta til þess að fara í verkefni. Mig langar svolítið að koma inn á þennan vinkil í fyrri spurningu minni til hv. þingmanns og líka inn á það að sá sem hér stendur hefur nú farið nokkuð víða og sérstaklega til Norðurlanda og kynnt sér uppbyggingu húsnæðis og regluverks á Norðurlöndunum. Ég hef hvergi rekist á þær svartsýnisspár eða dómsdagsspár sem hv. þingmaður vísar í um að þessi tiltekna breyting muni hafa þannig áhrif á markaðinn að það komi til með að draga verulega úr framboði. Til þess að nefna eitthvað hef ég til að mynda heimsótt OBOS í Noregi, AAB í Danmörku, óhagnaðardrifin og hagnaðardrifin leigufélög í Svíþjóð, svo eitthvað sé nefnt, og þar gegna þessi félög gríðarlega mikilvægu hlutverki eins og t.d. við sveiflujöfnun þegar markaðurinn byggir of mikið eða ekki rétt. Þá koma t.d. óhagnaðardrifin félög eða félög sem eru rekin á félagslegum grunni með innspýtingu þegar kemur lægð á markaðinn, sem væri t.d. kjörið að gerðist núna með félög innan almenna íbúðakerfisins, að þau kæmu með innspýtingu núna inn á markaðinn þar sem við höfum klárlega ekki verið að byggja réttar íbúðir.

Ég vildi spyrja hv. þingmann hvar hann gæti nefnt mér skýr dæmi um sambærilegar breytingar, þar sem þetta frumvarp byggist á því regluverki sem er við lýði á Norðurlöndunum.