158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[16:12]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það var einmitt ég sem spurði hæstv. ráðherra um ástandið í útlöndum og hvernig það væri þar vegna þess að mér finnst vanta hér, þótt það sé vísað örstutt til ýmissa landa með alls konar aðgerðir, í greinargerðina einhverja reifun á því hvaða aðgerðir það nákvæmlega eru og hvaða áhrif þessar aðgerðir hafa haft í þessum löndum. Það er engin umfjöllun um það hér. Það þýðir ekkert fyrir hæstv. ráðherra að koma í andsvar við mig og spyrja mig hvernig þetta sé. Ég hef ekki hugmynd um hvort nákvæmlega þessar reglur séu í útlöndum.

Ég nefndi bara að maður þekkir miklar kvaðir á húsaleigu, miklar kvaðir lagðar á leigusala í löndunum í kringum okkur. Ég nefni t.d. Svíþjóð. Ég hef átt samtöl við sósíaldemókrata í Svíþjóð sem allir virðast sammála um að húsnæðiskerfið í Svíþjóð sé algerlega að þrotum komið og fyrir löngu vegna þess að þar eru miklar kvaðir á aðilaskiptum að íbúðum og einhver hámarksleiga. Allt þetta hefur valdið því þar, a.m.k. í Danmörku og fleiri löndum líka þar sem einhverjar svona kvaðir eru, að biðlistinn eftir að gerast leigjandi er alveg fráleitt langur. Það myndast einhverjar keðjur í þessum löndum á þessum markaði þar sem menn eru að framleigja íbúðir og það eru kannski komnir margir einstaklingar, löng röð, keðja frá leigusalanum sjálfum af því að menn sleppa ekki íbúðinni sem þeir hafa á leigu. Horfum á hvernig þetta er á Spáni, í máli Maríu Carmen sem er búið að vera í umfjöllun núna í nokkra daga, þar sem ekki varð við neitt ráðið að koma út konu sem var enn þá að borga sömu leigu og fyrir mörgum áratugum. Þetta skapar auðvitað skort á markaðnum. Ég hef áhyggjur af því að þetta frumvarp geti gert það líka.