húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína framsögu og sína ræðu. Ég hef áhuga á að vita meira varðandi viðhorf stjórnarandstöðunnar og hv. þingmanns varðandi þær breytingar sem við höfum verið að gera, margvíslegar breytingar til að skerpa á leikreglum á leigumarkaði, og sömuleiðis líka varðandi félagslega uppbyggingu, sérstaklega í ljósi þess að hv. þingmaður talar mikið um einkaframtakið. Það er nú þannig að leikreglur almennt séð sem eru settar á húsnæðismarkaði, sérstaklega leigumarkaði eins og t.d. á Norðurlöndunum sem við erum að nota sem ákveðna fyrirmynd, koma svo sannarlega ekki í einhverju tómarúmi og þá sérstaklega einmitt út af því að einkaframtakið hefur ekki staðið sig. Við erum hér t.d. með 1.900 óseldar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma eru t.d. hátt í 4.000 kennitölur á biðlista eftir hagkvæmu húsnæði hjá Bjargi. (Forseti hringir.)
Spurning mín til hv. þingmanns er: Stendur hann virkilega í þeirri trú að einkaframtakið og markaðurinn hafi staðið sig og sé burðugt til að leysa húsnæðisvandann?