158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[17:10]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Ragnar Þór Ingólfsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og góða brýningu. Ástæðan fyrir því að ég er að spyrja að þessu varðandi markaðinn er að staðan sem er komin upp á íslenskum húsnæðismarkaði er ekkert einsdæmi. Þau félög og þau úrræði sem gripið hefur verið til annars staðar eru viðbragð við markaðsbrestum. Það er það sem við höfum auðvitað miklar áhyggjur af, að markaðurinn sé að fara í algjört frost af því að hann hefur lítinn hvata, því miður, til að byggja hagkvæmt húsnæði og bjóða húsnæði á viðráðanlegu verði. Þannig virkar markaðurinn ekki og það er engin undantekning hér frekar en annars staðar.

Ég get hins vegar glatt hv. þingmann með því að í samráðsgátt eru komnar tillögur til breytinga á skipulagslögum sem taka á tímafrestum í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og því neitunarvaldi sem sveitarfélög hafa haft. Við erum að kynna nýja og mjög einfalda byggingarreglugerð (Forseti hringir.) og ég get tekið undir með hv. þingmanni, að samstarf uppbyggingaraðila og óhagnaðardrifinna félaga er lykill að heilbrigðari húsnæðismarkaði og sömuleiðis líka reglugerð.