158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[17:23]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Það væri kannski ráð að við myndum byrja á að slökkva á myndavélunum og reyna að gera þetta í sem mestu hljóði, að reyna að ræða þetta frumvarp, miðað við það hvernig kaflinn hér um samráðið hljóðar. Með leyfi forseta, segir hér m.a.:

„Í ljósi þeirra breytinga sem um ræðir var ákveðið að hvorki áform um lagasetninguna né drög að frumvarpi yrðu kynnt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem slíkt gæti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna.“

Hér stöndum við svo, virðulegur forseti, og erum að ræða þetta mál fyrir opnum tjöldum og allra augum þannig að þau hljóma hálfankannalega þessi orð um að það geti hvatt til leiguverðshækkana fram að gildistöku breytinganna. Þetta er orðin regla frekar en undantekning hjá hæstv. ríkisstjórn að þegar svona stór mál koma fram þá ákveði hæstv. ráðherrar að setja mál ekki í samráð. Hvað var það við þetta mál sem krafðist þess að það færi ekki samráð? Þá er ég ekki að tala um eitthvert spjall við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun eða eitthvert spjall milli ráðuneytisstarfsfólks, heldur samtal við alla þá hagaðila sem eiga hagsmuni af því að svona mál og svona frumvörp séu vel úr garði gerð.

Í þessu frumvarpi er verið að leggja til enn frekari og meiri skerðingar á samningsfrelsi markaðarins og fólks. Að sjálfsögðu fylgir því, eins og svo oft áður, aukin skriffinnska. Undir kaflanum um mat á áhrifum segir m.a., með leyfi forseta:

„Í frumvarpinu er lagt til að Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun útbúi staðlað tilkynningareyðublað vegna reglubundinna breytinga á leigufjárhæð og haldi úti reiknivél til útreiknings á breyttri leigufjárhæð. Jafnframt þarf að gera takmarkaðar breytingar á leiguskrá húsnæðisgrunns þannig að unnt verði að skrá lagagrundvöll breytinga á leigufjárhæð samhliða skráningu breytinganna.“ — Svo mörg voru þau orð, virðulegur forseti.

Þetta er ekki fyrsta frumvarpið sem við tökum hér inn á hv. Alþingi þar sem verið er að þrengja að eignarrétti fólks og samningsrétti milli aðila. Við vorum að ræða frumvarp hér í vetur og þá þurftu menn að fara að skrá eignir inn í einhvern leigugrunn hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og þar fram eftir götunum. Allt er þetta einhvern veginn til þess gert að draga úr hvatanum til þess að vera með húsnæði á leigumarkaði. Þegar kvaðirnar og skyldurnar og reglugerðirnar eru orðnar svo íþyngjandi að fólk, sem er kannski að leigja eina íbúð, bílskúrinn sinn eða aukaíbúð í eigninni sinni — þegar þetta er orðið með þeim hætti að það er búið að þrengja svo að þeim aðilum sem eru að leigja út eignir að það borgi sig ekki, hvað gerist þá? Jú, þá fækkar íbúðum á markaði. Það hefur sýnt sig margoft, og það sýna margar rannsóknir erlendis og annað. Það getur vel verið að ein og ein aðgerð, eins og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson kom inn á hér áðan, og vitnaði m.a. í grein í Financial Times, að einhverjar svona takmarkanir og einhverjar svona þvinganir eins og verið er að fara í núna gagnist þeim sem eru á leigumarkaði akkúrat núna en alls ekki þeim sem eiga eftir að koma inn á leigumarkaðinn. Hæstv. ríkisstjórn Íslands er ekki fyrsta vinstri stjórnin í hinum vestræna heimi sem dettur í hug að til að koma böndum á leigu eða takmarka eignarrétt og samningsfrelsi fólks með það að markmiði að koma leigjendum til bjargar en svo komast menn að því að það hefur yfirleitt þveröfug áhrif. Gagnast það leigjendum ef leiguíbúðum fækkar?

Síðan er hér lagt til að bannað verði að gera mánaðarlegar breytingar á leigufjárhæð nema á 12 mánaða fresti. Og til hvers mun það leiða? Jú, það mun líklega leiða til þess að upphaflega leigan, leiga sem verður umsamin næstu 12 mánuði, verður hærri; hún verður hærri fyrir leigjandann. Gagnast það leigjendum að upphæðin verði hærri í upphafi? Hér kristallast munurinn á vinstri stjórnum og hægri stjórnum sem horfa til borgaralegra gilda í landinu. Í stað þess að koma með endalausar íþyngjandi reglugerðir og kvaðir, í þessu tilfelli á leigusala og á leigumarkaðinn, þá horfum við til þess hvernig við getum liðkað fyrir því að byggja ódýrara húsnæði, hvernig við getum liðkað fyrir því að hafa skattumhverfið þannig að fólki gefist tækifæri á að kaupa eigin eign. Séreignarstefnan hefur verið aðalsmál okkar Íslendinga. Við höfum verið stolt af því að við búum til þá umgjörð að fólk geti eignast eigið húsnæði. Það er alvöru öryggi, virðulegur forseti, að eignast eigið húsnæði.

En hvað er hæstv. ríkisstjórn að gera? Er hún að ýta undir að hagstæðara húsnæði verði byggt á Íslandi? Nei, í fjárlögunum er t.d. verið að draga úr endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað í staðinn fyrir að auka endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað til að ýta undir byggingarframkvæmdir, til þess að ýta undir að ódýrari íbúðir séu byggðar. Í stað þess er verið að minnka endurgreiðslu á vaskinum. En það er líka draumur margra vinstri manna, það sem kallað er óhagnaðardrifin leigufélög sem eru komin með tugi milljarða í eigið fé. Það virðist vera þessi draumur um að búa til hóp, fjölga leiguliðum, fjölga þeim sem eru að leigja. Ég velti því fyrir mér með verkalýðsfélögin sem hafa verið með þessi óhagnaðardrifnu félög, af hverju fara þau ekki í átak til þess að reyna að selja sínum leigjendum íbúðirnar? Þegar myndast hefur tugmilljarða króna eigið fé í þessum félögum, af hverju er ekki farið í það að reyna að selja fólki þessar íbúðir, koma því út úr leigunni og inn í séreign, koma því inn í sitt eigið húsnæði? Nei, það á alls ekki að gera það enda samræmist það ekki hugsjón og stefnu vinstri manna.

Síðan er það þannig að lögin eru afturvirk. Nær allir ótímabundnir leigusamningar sem nú eru í gildi verða fallnir úr gildi eftir u.þ.b. 8 til 10 ár. Þrátt fyrir að eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar standi ekki sjálfkrafa í vegi fyrir því að leigubremsa eða aðrar slíkar takmarkanir séu settar á eignarrétt leigusala þá verður samt að gæta að meðalhófi við alla lagasetningu í þá átt. Það kann því að orka tvímælis að láta frumvarpið gilda afturvirkt með tilheyrandi inngripi í eignarrétt og réttmætar væntingar leigusala. En hér erum við enn og aftur að horfa upp á enn eitt lítið skrefið til þess að takmarka eignarrétt fólks, takmarka samningsfrelsi á frjálsum markaði. Og allt á þetta að vera með það að markmiði að leigjendurnir njóti verndar. En með allar svona aðgerðir, þegar upp er staðið, eru það leigjendurnir sem munu sitja í súpunni af því að það er alltaf minni og minni hvati til þess að vera með eignir á leigumarkaði. Kostnaðurinn, reglugerðirnar, umsýslan og annað er orðið þess eðlis að það er bara betra að setja eignirnar á sölu eða leigja þær ekki út frekar en að undirgangast reglugerðafargan vinstri stjórnarinnar. Og hver situr þá uppi með sárt ennið? Leigjandinn. Og hvað gerist þegar leiguíbúðum fækkar á markaði? Jú, eftirspurnin eykst og leigan hækkar. Það er það sem gerist. Þá munum við ábyggilega sjá hér einhver fleiri frumvörp frá hæstv. ríkisstjórn um það hvernig koma eigi böndum á og bregðast við því ástandi sem verður komið á leigumarkað sem er sjálfskapað, manngert ástand á leigumarkaði, sjálfskapað af vinstri mönnunum. Þá munu þeir koma og segja: Nú ætlum við að laga og bregðast við ástandinu á leigumarkaðnum sem við höfum skapað. Hæstv. ráðherrar og hv. stjórnarþingmenn munu ekki sjá það þeim augum; þeir munu leita að blórabögglum einhvers staðar annars staðar og þá líklega í leigusölunum, vonda auðvaldinu, eignafólki. Það verður ekki skortur á að finna einhver uppnefni á fólk og leigusala þegar að því kemur, þegar ástandið á leigumarkaðinum verður orðið með þeim hætti. Þegar upp er staðið, virðulegur forseti, eru það leigjendurnir sjálfir sem koma verst út úr svona inngripum inn í frjálsan markað.

Að lokum, virðulegur forseti, þá væri nú gaman að sjá fulltrúa hins frjálslynda hægri flokks Viðreisnar hér í salnum. Það væri gaman að sjá fulltrúa Viðreisnar koma hingað upp og tala fyrir því að skerða eignarrétt og samningsfrelsi fólks. Hvar eru hinir frjálslyndu hægri menn í Viðreisn núna? En þetta er reyndar ekki fyrsta málið, fyrsta frumvarpið, sem kemur frá Flokki fólksins þar sem hv. þingmenn Viðreisnar láta ekki sjá sig í ræðustól, enda á þetta frumvarp ekkert skylt við þá stefnu sem a.m.k. er hægt að lesa um á heimasíðu Viðreisnar þó svo að í hæstv. ríkisstjórn megi kannski ekki sjá þá stefnu í framkvæmd. En ég trúi því að í hjarta sínu séu þeir enn þá þar og þess vegna sjáist þeir ekki hér í þessum umræðum frekar en í mörgum öðrum umræðum um mörg önnur frumvörp sem koma úr þessum ranni.