húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hv. þingmaður talar mikið um hinn frjálsa markað og mikilvægi hans og telur að allt inngrip stjórnvalda, varðandi regluverk og eðlilegar breytingar á því umhverfi sem t.d. fólk á leigumarkaði þarf að búa við, muni snúast upp í andhverfu sína.
Ég vil nota tækifærið og spyrja hv. þingmann, einmitt í ljósi þess að það eru leigjendur sem munu sitja í súpunni varðandi þessar breytingar, varðandi þær aðgerðir sem hans flokkur hefur staðið fyrir síðustu ár, ef ekki áratugi, bæði með séreignarstefnunni, þegar 90% lánin voru veitt á sínum tíma með gríðarlegri bólumyndun sem þær aðgerðir mynduðu, og sömuleiðis líka þá stöðu sem er uppi á húsnæðismarkaði í dag þar sem markaðurinn hefur klárlega brugðist skyldum sínum. Hér hefur myndast mikil og alvarleg skortstaða á húsnæðismarkaði. Hér eru um 1.900 íbúðir sem eru óseldar og við erum ekki búin að gera þessar tiltölulega einföldu og eðlilegu breytingar á lögum nú þegar, á meðan við erum með um 4.000 — ætli það telji ekki í heildina, ef allt er tekið með — um 8.000 kennitölur á biðlistum eftir félagslegu, hagkvæmu íbúðarhúsnæði.
Telur hv. þingmaður virkilega að þær aðgerðir sem hans flokkur og hans ríkisstjórnir hafa farið í síðustu ár og áratugi, m.a. með niðurlagningu Félagsbústaða, hafi verið til bóta fyrir húsnæðismarkaðinn og sérstaklega leigjendur sem svo sannarlega sitja í súpunni í dag?