158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[19:21]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994, um reglubundnar breytingar á leigufjárhæð. Frumvarpið er þó töluvert að sniðum og nokkuð ítarlegt en það sem hefur verið hér í umræðunni, og var hjá hv. þingmanni sem talaði hér rétt á undan í ræðustól, sneri að því að markmið þessara laga væri göfugt og gott en leiðirnar að markmiðinu væru dæmdar til þess að tilgangur þessa frumvarps sem hér um ræðir myndi ekki ná fram að ganga.

Ég get tekið undir margt sem hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu og fleiri hv. þingmenn sem hafa sömuleiðis tekið til máls hér í dag og vara við þessari leið sem verið er að fara. Jú, ég held að við séum öll hér inni sammála um að við viljum fara þá leið að reyna að gera leigumarkaðinn gegnsæjan og reyna að stilla verði í hóf varðandi leigumarkað. Ég held að það sé alveg ljóst að allir hv. þingmenn vilji stefna þangað. En með þessari leið sem hér er boðuð óttast ég að það geti haft þveröfug áhrif á þróun leiguverðs. Fyrsta viðvörunarljósið sem maður rekur verulega augun í er skrifað inn í þetta frumvarp sem hér um ræðir, sem er 12. gr. frumvarpsins. Og það væri mjög áhugavert, því að ég sé að hv. þm. Sigurjón Þórðarson er að koma í andsvar við mig á eftir, að við færum aðeins yfir það hvað getur gerst. Ég ætla að lesa upp úr 12. gr. sem snýr að gildistíma laganna og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2027 og gilda um leigusamninga sem komast á eftir það, þ.m.t. leigusamninga sem eru endurnýjaðir eða framlengdir eftir það tímamark.“

Þá er ég að segja, frú forseti, að ef svo fer að þau lög sem hér um ræðir fara í gegn tiltölulega óbreytt, og nú tek ég fram að við erum hér í 1. umræðu og málið á eftir að fara til hv. velferðarnefndar til frekari umræðu og vinnslu, en ef svo fer að það verði á þann veg að við sjáum fram á að lögin taki gildi 1. júlí 2027 þá óttast ég að það geti farið af stað hér ákveðin skriða í hækkunum á leiguverði. Væntanlega hefur við samningu þessa frumvarps verið farið ofan í þá þætti og menn velt því fyrir sér hvort það sem við höfum verið að benda á í umræðu um þetta mál í dag sé á þann veg að þetta geti haft þessi áhrif. Sömuleiðis tel ég það umhugsunarefni, og ég held að það væri mjög mikilvægt fyrir hv. velferðarnefnd að fara vel yfir það í vinnu sinni, þegar kemur að því hvað hugsanlega gæti gerst þegar eitthvert grunnverð er ákveðið. Það má að vísu hækka leigu í takti við breytingu á vísitölu neysluverðs á 12 mánaða fresti. Það er gott og gilt. En þá þurfum við líka að hafa fleiri þætti sem spila þarna inn í. Þeir þurfa líka að fylgja með og þá kem ég inn á það að til þess að hægt verði til framtíðar að bjóða upp á leiguhúsnæði með hóflegu leiguverði og sömuleiðis nýtt húsnæði, þá þurfum við að endurskoða fleiri þætti en bara þennan þátt.

Þá á ég við byggingarkostnað á nýjum íbúðum sem að mínu viti hefur hækkað óhóflega undanfarin ár og þar þurfum við að taka til hendinni. En, frú forseti, eins og oft áður held ég að þeim sem leggja hér fram frumvörp og annað gangi gott eitt til. Og þá getum við líka borið það saman við það sem stendur t.d. í fjárlagafrumvarpi hæstv. ríkisstjórnar núna þar sem stefnt er að hallalausum fjárlögum. Jú, stefnt er að hallalausum fjárlögum, sama hvað það kostar, og við í Framsókn lögðumst í þó nokkuð mikla vinnu til að finna út úr því, sama hvað það kostar. Og á hverjum lenda t.d. allar þessar krónutöluhækkanir og breytingar sem eru boðaðar í fjárlagafrumvarpinu? Á hverjum lenda þær harðast? Við þekkjum öll umræðuna, hvernig hún hefur verið hér í þingsal undanfarin ár, þegar kemur að því að talað er um að skattleggja breiðu bökin. En þegar við fórum í ákveðna vinnu í Framsókn við að meta áhrifin af því fjárlagafrumvarpi sem liggur nú fyrir kemur í ljós að þær hækkanir lenda þyngst á ungu fólki með tvö börn og þær hækkanir eru um 343.000 kr. á ári, bara þær hækkanir sem boðaðar eru í fjárlagafrumvarpinu núna. Það eru ekki breiðu bökin sem taka á sig mestu hækkanirnar og því veltir maður fyrir sér í því samhengi sem hér er um rætt. Það hefur verið talað um að koma til móts við þá sem minna hafa á milli handanna og mér líkar ekki sú orðræða og umræða sem hefur verið hér í dag þegar talað er um litla manninn. Þetta er óvirðing. Við erum öll jöfn og sumir hafa bara meira á milli handanna og mér finnst ekki gott að við séum að orða það þannig að þeir sem eru á leigumarkaði séu litli maðurinn. Ég hef alveg skilning á því um hvað verið er að ræða en ég held að við ættum að leggja svona orðræðu til hliðar að tala um litla manninn. Við erum bara að tala um einstaklinga sem eru allir jafnir í þessu þjóðfélagi, bara misjafnar aðstæður sem einstaklingar, fjölskyldur, þurfa að eiga við og við skulum hafa það í huga. Tilgangurinn er sá að reyna að gera einstaklingum, fjölskyldufólki, auðveldara að eiga heimili, hvort sem það er á leigumarkaði eða í eigin húsnæði.

Því miður, frú forseti, held ég að sú leið sem hér er boðuð af hendi ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur sem snýr að breytingu á húsaleigulögum sé ekki til þess fallin að skila þeim árangri sem lagt var af stað með í upphafi. Vissulega getur það verið þannig að hinum ýmsu aðilum sem fengu málið til skoðunar þegar frumvarpið var í smíðum hafi litist ágætlega á það.

Ég geri sömuleiðis athugasemdir við að málið hafi ekki farið í samráðsgátt þegar verið var að undirbúa málið. Sá ferill hefur nýst okkur vel hér á hinu háa Alþingi og í hæstv. ríkisstjórn, hvort sem það er sú ríkisstjórn sem situr núna eða aðrar ríkisstjórnir, frá því að það fyrirkomulag var tekið upp, þ.e. samráðsgáttin. Þar hafa komið inn ábendingar og annað við vinnslu frumvarpa en þá verður það sömuleiðis Alþingis, hv. velferðarnefndar sem tekur málið til vinnslu, að fara ofan í saumana á því og kalla til umsagnaraðila til þess að við náum því markmiði sem við öll viljum stefna að. Við þurfum þá líka að kafa ofan í hvernig það verður gert. Og ef það er þannig að sú leið sem hér er boðuð, og ég hef lýst efasemdum um, sé rétta leiðin að því markmiði sem að er stefnt skal ég glaður éta það ofan í mig að ég hafi rangt fyrir mér um það sem hér hefur verið sagt; öll sú orðræða sem hefur farið hér fram í dag. En það gerist ekki nema við tökum allt upp á borðið, köllum til okkar gesti og förum mjög rækilega yfir það hvernig við náum að stilla hér leiguverði í hóf og ég verð sennilega sá síðasti til þess að tala um að leigumarkaður á Íslandi sé bara eðlilegur. Í mínum huga er hann það ekki og það er ekkert eðlilegt við að fólk þurfi að borga 70–80% af sínum ráðstöfunartekjum í leigu, engan veginn í lagi.

En frú forseti, ég held að það sé mjög mikilvægt í þessu samhengi að eiga hér upplýsta umræðu um þetta mál. Það hafa komið fram athugasemdir við frumvarpið hér í umræðu í dag, margar hverjar ágætar, en tilgangurinn hlýtur að vera sá sami hjá okkur öllum, það er að reyna að skapa hér heilbrigðan leigumarkað. Er þetta leiðin sem við náum því markmiði með? Ég hef lýst efasemdum um það, bæði í andsvörum og í ræðu hér, að þetta sé sú leið.

En ég ætla ekki að hafa þessa ræðu lengri, frú forseti, heldur frekar að hlusta á umræður og eiga andsvör við hv. þingmenn sem hafa boðað það að þeir komi í andsvör. Ég tel mjög mikilvægt að við veltum því fyrir okkur hvað getur gerst ef þessi lög taka gildi núna fyrir áramótin. Hvaða áhrif mun það hafa á leigumarkaðinn þangað til gildistaka verður 1. júlí árið 2027? Og ég óttast að það verði ekki jákvæð áhrif því að það markmið sem lagt er af stað með í þessu frumvarpi mun ekki nást.