158. löggjafarþing — 12. fundur,  5. okt. 2026.

húsaleigulög.

157. mál
[19:36]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Ég gat ekki séð eða heyrt af neinni spurningu hjá hv. þingmanni heldur að hann hefði verið að agnúast yfir mínum skoðunum hér og það er bara gott og vel. Eitt vil ég benda á í þessari umræðu, að ef hv. þingmaður hefði hlustað á það sem ég sagði áðan þá lýsti ég efasemdum. Ég lýsti því aldrei yfir að ég væri mótfallinn því að tök næðust á leigumarkaðinn, langt í frá. Ég lýsti efasemdum um að þetta væri rétta leiðin að því markmiði. Það er stór munur á því.

Það er alveg ljóst í mínum huga, þó að hv. þingmaður telji það bara eðlilegt að við tölum um litla manninn og vitni í Albert Guðmundsson heitinn, að við eigum ekki að ræða svona um fólk. Í mínum huga eiga allir einstaklingar að vera jafnir, eiga rétt á því að geta skapað sér viðunandi aðstæður með sem bestum hætti. Og ef það er nú stóra málið í því hvaða orðatiltæki menn nota þá get ég alveg hlíft hv. þingmanni við því og leyft honum þá bara að nota þau orð sem hann vill.

En lykilatriðið í þessu er, frú forseti, að við reynum að sameinast um það í hv. velferðarnefnd, þegar sú vinna fer af stað, hvernig við komumst að því markmiði sem við erum öll sammála um, sem er göfugt og gott markmið, og lagt er fram í frumvarpinu. En ég efast um að þær leiðir sem hér eru boðaðar uppfylli þann draum sem við flest höfum og það markmið sem við höfum, að ná hér fram eðlilegri leigu á markaði, vegna þess að í mínum huga er hún það ekki og hún er allt of há fyrir mjög marga.