158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Á Heiðarfjalli á Langanesi blasir við eitt alvarlegasta elsta mengunarmál Íslandssögunnar. Bandaríski herinn rak þar ratsjár- og fjarskiptastöð fram til ársins 1970. Nú eru liðin meira en 50 ár frá því að starfseminni lauk. Samt hefur svæðið ekki verið hreinsað. Við vitum að stórhættuleg efni liggja í jarðveginum. Þar hafa fundist PCB-efni, blý, asbest og olíuefni langt yfir viðmiðunarmörkum. Vitað er að mengunin er ekki bara bundin við gamla stöðvarsvæðið heldur berst hún með grunn- og yfirborðsvatni til suðurs. Mengunin skapar þannig hættu fyrir fólk og dýr. Rannsóknir hafa verið gerðar, skýrslur skrifaðar og viðvörunarskilti reist en hin mengandi efni eru enn á sínum stað rúmri hálfri öld eftir að herinn fór af svæðinu. Þetta mál þarf ekki lengur pólitíska umræðu. Það er brýn þörf á aðgerðum. Það hefur ekkert upp á sig að benda á tiltekna ríkisstjórn, ráðherra eða stjórnmálaflokk sem hefðu átt að leysa málið. Ábyrgðin hefur verið á höndum ríkisstjórna og ráðuneyta og farið þar á milli í áratugi. Nú ættum við hins vegar öll að geta staðið saman um að ganga í verkið þvert á flokka og pólitíska stefnu.

Það eru aðeins tveir ábyrgir kostir í stöðunni; annaðhvort verði svæðið hreinsað með skipulögðum og öruggum hætti eða því lokað þannig að fólk og skepnur komist ekki inn á hættusvæðið þar til hreinsun hefur farið fram. Viðvörunarskilti fjarlægja ekki PCB, blý eða asbest. Þau stöðva ekki mengun sem berst með vatni og vernda hvorki fólk, búfé né náttúru með fullnægjandi hætti.

Virðulegi forseti. Ég legg til að við tökum höndum saman um tímasetta og fjármagnaða áætlun til að hreinsa Heiðarfjall. Þar til hreinsunarstarf og á meðan á því stendur verði mengaða svæði lokar með tryggum hætti. Það er óþarfi að deila um hver ber mesta ábyrgð á því að ekki hefur verið gripið til aðgerða. Þingmenn bera aftur á móti allir sameiginlega ábyrgð á stöðunni eins og hún er núna. Bindum enda á rúmlega hálfrar aldar aðgerðaleysi. Göngum í verkið.