Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegur forseti. Hér er enn á ný rætt um bókun 35. Ég lýsti því í andsvari við hæstv. utanríkisráðherra að mér blöskraði málflutningur hennar í framsögu hennar en þegar á leið á andsvörin skaut þeirri hugsun reyndar niður í kollinn á mér að hæstv. utanríkisráðherra þekkti bara raunverulega hvorki haus né sporð á þessu máli og þeim dómsmálum sem hún hefur verið að tína til og henda inn í umræðuna hér sem rökstuðningi fyrir því að þetta tiltekna frumvarp þurfi að ná fram að ganga og engan tíma megi missa í þeim efnum.
Bókun 35 er áhugavert mál og það er skemmtilegt, þótt almenningur og jafnvel fólk hér innan dyra reyni að telja sjálfu sér og öðru fólki trú um að þetta sé ofboðslega leiðinlegt mál. Þetta er ekki einfalt mál en það er þó ekki sérstaklega flókið. Það eru auðvitað nokkrir íslenskir dómar, þeir eru kannski teljandi á fingrum beggja handa, þar sem bókun 35 er nefnd eða hefur verið fjallað um. Þeir dómar eru í sjálfu sér ekki flóknir og nýjustu dómar sem hafa verið að falla þar sem bókun 35 hefur borið á góma eru á engan hátt óvæntir eða ófyrirséðir, á engan hátt, a.m.k. ekki þeim sem starfa í lögfræði. Fyrir þá sem eru lögfræðingar eða hafa fylgst með dómaframkvæmd og dómum og eru ágætlega að sér í lögfræði eru þessir dómar á engan hátt óvæntir. Ég nefni sérstaklega, af því að ég ætla að fjalla nánar um þá, annars vegar fæðingarorlofsdóminn sem hefur verið mikið í umfjöllun og svo nýlega hefur verið hent inn í umræðuna dómi sem fjallar um málaferli lítillar stúlku, eins og það er orðað, til að gera málið svona vænlegra til árangurs fyrir þá sem eru að vinna þessu máli fylgis, gegn lítilli sjoppu, eins og það er líka orðað, vegna tjóns sem stúlkan varð fyrir þegar hún keypti sælgæti og henni varð eitthvað meint af.
En mig langar að nefna áður en ég vík að því það sem skiptir kannski mestu máli, þ.e. aðdragandann að EES-samningnum. Þegar við skrifuðum undir samninginn árið 1992 hafði árin þar á undan verið mikið fjallað um það hvort EES-samningurinn myndi standast stjórnarskrá. Það liggur fyrir í EES-samningnum að það er verið að framselja ákveðið vald utan frá Íslandi. Þetta var mikið reifað. Niðurstaðan varð sú að komast að þeirri niðurstöðu að það valdaframsal sem fælist í EES-samningnum myndi sleppa gagnvart stjórnarskránni að því gefnu að m.a. bókun 35 yrði ekki innleidd. Um þetta var samstaða með mönnum og Alþingi á þessum tíma, að bókun 35 yrði ekki innleidd eins og hún lá fyrir og innleiddum reglum EES-réttarins sem eru réttilega innleiddar í íslenskan rétt yrðu ekki veitt forgangsáhrif á aðrar íslenskar reglur. Um þetta voru menn sammála. Þetta hefur verið athugasemdalaust af hálfu viðsemjenda okkar, sem er Evrópusambandið, í 25 ár, hátt í 30 ár, athugasemdalaust og hefur ekki valdið neinum vandkvæðum. Þeir dómar þar sem menn hafa reynt að beita fyrir sig bókun 35 eru teljandi á fingrum handa okkar. Það má segja að þar hafi kannski verið skotið út í loftið en það er eðlilegt að menn tefli öllu fram í málaferlum. Ég held að flestir lögmenn hafi áttað sig á því að bókun 35 er ekki í gildi hér á landi og þess vegna tómt mál í rauninni að bera slíkt undir dómstóla.
Þetta finnst mér skipta miklu máli vegna þess að ef aðstæðurnar eru breyttar núna, ef allt í einu nú kemur ríkisstjórn eða Alþingi og ætlar að segja: Nú eigum við að innleiða bókun 35, þá þurfum við að fara aftur til ársins 1990 þegar við vorum að ræða þessi mál. Hvað hefur breyst? Hefur stjórnarskránni okkar verið breytt til þess að leyfa slíkt valdaframsal? Nei. Hæstv. utanríkisráðherra nefndi í framsögu sinni Noreg og benti á það sem er alveg rétt, Noregur er fullvalda ríki og Norðmenn hafa innleitt bókun 35. Það er líka alveg rétt. En Noregur tók bara sérstaka ákvörðun um það árið 1962 að breyta stjórnarskrá sinni þannig að hún heimilaði valdaframsal til alþjóðastofnana. Það var gert árið 1962. Menn og ríki eru alveg fullvalda um að gera það. Við getum breytt stjórnarskránni og ákveðið að framselja vald til alþjóðastofnana. Við getum líka ákveðið að hætta að vera þjóð. Við getum tekið alls konar ákvarðanir af því að við erum fullvalda og sjálfstæð þjóð. Spurningin er bara: Hversu langt viljum við ganga? Árið 1990 vildum við ekki ganga svo langt að innleiða bókun 35. Þetta var mikið rætt. Hæstv. utanríkisráðherra nefnir hérna einn eða tvo lögfræðinga sem eru tilbúnir auðvitað að skrifa undir það: Þetta sleppur, þetta verður ekki vandamál, stjórnarskráin truflar þetta ekki. Við getum líka nefnt fleiri lögfræðinga, júrista, lögmenn sem benda á hið gagnstæða. Það er sú umræða sem þarf að fara fram hér á þinginu. Þessi umræða þarf að fara fram á þinginu.
Hæstv. forsætisráðherra nefndi að hún vænti þess að þetta frumvarp næði fram að ganga þannig að þessi forgangsregla nái fram að ganga og, eins og hún orðaði það, í samræmi við íslenska stjórnskipan. Ég hefði viljað fá og þætti vænt um ef hæstv. utanríkisráðherra tæki til máls í sérstakri ræðu bara til þess að ræða þetta eina atriði, til að ræða það hvernig þessi forgangsregla bókunar 35 er í samræmi við íslenska stjórnskipan. Þetta er stórt atriði og á þessu steytir, a.m.k. frá mínum bæjardyrum séð og af hálfu Miðflokksins. Þetta er stóri ásteytingarsteinninn. Frá mínum bæjardyrum séð tek ég undir með júristunum frá 1990 um að slíkt valdaframsal gangi ekki að óbreyttri stjórnarskrá. Ef við viljum breyta stjórnarskránni að þessu leyti þá skulum við taka þá umræðu en við förum ekki fram hjá stjórnarskránni með þessum hætti. Þetta er lykilatriði. Það að veita almennum lögum forgang, einhverjum sérstökum almennum lögum, í þessu tilfelli lögum sem eru að innleiða EES-réttinn, veita þeim hærri rétthæð í öllu réttarheimildasafninu, þ.e. veita tilteknum almennum lögum forgang á önnur almenn lög — þetta stenst ekki.
Mér hefur þótt forvitnilegt að fylgjast með því í lagakennslu undanfarin ár við báða háskólana að þrátt fyrir mikla umræðu um bókun 35 hér og í þjóðfélaginu er ekki enn þá verið að víkja að því einu orði gagnvart nemendum sem eru að læra lögfræði, unga fólkinu okkar sem er að fara að útskrifast og er að útskrifast. Það er ekki vikið að því einu orði hvernig réttarheimildafræðin muni taka stórkostlegum breytingum, nái þetta frumvarp fram að ganga. Mér finnst það áhugavert. Mér finnst líka áhugavert hversu fáir í rauninni lögfræðingar hafa tekið til máls í þjóðmálaumræðunni um þetta mál.
En af því að tíminn líður hér þá kem ég aðeins að fæðingarorlofsmálinu. Í því máli er lagt fyrir Hæstarétt að skera úr um ágreining. Krafa stefnanda í því máli er að einhver önnur regla gildi heldur en þau skýru ákvæði íslensku laganna sem voru í gildi þá. Vel að merkja þá er rétt að hafa það í huga að Ísland hafði á þessum tíma og hefur fyrir löngu innleitt reglugerð Evrópusambandsins um samræmingu almannatryggingakerfa. Það var gert fyrir löngu, fyrir mörgum árum, áratugum síðan. Svo liðu nokkur ár og Evrópusambandslöndin túlkuðu þessa reglugerð með mismunandi hætti þannig að Evrópudómstóllinn var krafinn svara um hvað fælist í þessari reglugerð um samræmingu almannatryggingakerfa. Fólk var að flytja á milli Danmerkur og Þýskalands og Þýskalands til Sviss eða frá Þýskalandi til Sviss og það lagði þessa spurningu fram og vildi fá svona bætur eins og í fæðingarorlofi, færa bætur úr velferðarkerfinu milli landa. Evrópudómstóllinn komst að einhverri niðurstöðu mörgum árum eftir að reglugerðin var sett og þá er spurningin: Á Ísland að fylgjast með einhverri réttarframkvæmd hjá Evrópudómstólnum og hvað er að gerast þar og hvernig reglugerðir Evrópusambandsins eru túlkaðar frá degi til dags? Svo hafa fallið margir dómar hjá Evrópudómstólnum um þetta mál, alls konar útfærslur. Það er ekki enn þá alveg búið að svara því, held ég, með hvaða hætti menn ætla að reikna bæturnar þótt í þessu íslenska fæðingarorlofsdæmi hafi aðallega verið velt upp spurningunni um ávinnslu réttinda og tímamörk en ekki við hvaða laun ætti að miða. Hefði t.d. átt hér á Íslandi, vegna þessa máls, að breyta t.d. fæðingarorlofslögunum þannig núna — mér sýnist miðað við dóma Evrópudómstólsins að það væri heimilt að miða við launin sem læknirinn hafði í Danmörku en ekki háu launin sem læknirinn hafði í nokkra mánuði á Íslandi. Þetta er spurningin sem löggjafinn þarf að taka upp núna ef það liggur fyrir okkur að þurfa að borga bætur eða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til fólks sem er að vinna í lágtekjuríkjum en kemur til Íslands og vinnur kannski í eina viku á Íslandi og öðlast rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði miðað við reiknaðar tekjur eins og það hefði haft á Íslandi í 12 mánuði en ekki tekjurnar í 12 mánuði í Danmörku eða Póllandi eða Portúgal. Þetta er spurning sem löggjafinn verður að taka upp þegar svona dómar falla og svona ágreiningur kemur upp. Það er ekkert að því, það er bara eðlilegur ágreiningur, eðlileg lögfræðileg álitaefni sem koma upp og menn þurfa að taka upp.
Bókun 35 hefði engu máli skipt í fæðingarorlofsmálinu þótt við værum búin að innleiða hana vegna þess að það var alltaf ágreiningur um hvernig reglugerðin var innleidd á Íslandi. Hún var ekki innleidd réttilega. Og eins og þið sjáið í frumvarpinu þá varðar bókun 35 bara innleiddar gerðir eða íslensk lög sem byggja á EES-gerðum sem eru réttilega innleiddar. Reglugerð Evrópusambandsins um samræmingu almannatryggingakerfa var ekki réttilega innleidd á Íslandi. Þess vegna hefði þessi ágæti læknir líka þurft að höfða mál óháð bókun 35.
Hitt málið sem mig langar að nefna og mér finnst það verra vegna þess að ég tel að hæstv. utanríkisráðherra sé þar að blekkja verulega í umræðu um réttindi einstaklinga vegna bókunar 35. Hún nefnir sælgætisbúðarmálið. Unga stúlkan þar höfðaði mál á þeim tíma samkvæmt þágildandi lögum um skaðsemisábyrgð. Hún höfðaði mál á hendur sjoppunni og innflytjanda sælgætisins sem í skilningi skaðsemisábyrgðarlaga er framleiðandi. Hún höfðaði mál á hendur þeim báðum, eðlilega, og fékk dæmdar bætur úr hendi beggja, úr hendi sjoppunnar og innflytjandans sem er framleiðandi, in solidum, þ.e. þeir báru samábyrgð á bótunum. Trúlega hefur tryggingafélag framleiðandans á endanum borgað það, ég veit ekki hvernig það var, það er aukaatriði. Stúlkan höfðaði mál á hendur báðum. Íslensku lögin þágildandi tryggðu stúlkunni og öllum neytendum þennan mikla rétt, að geta höfðað mál á hendur dreifingaraðila sem er sjoppa og innflytjanda sem telst framleiðandi. Nokkrum árum seinna — sjoppan var auðvitað ekki ánægð með að þurfa að sitja uppi með þetta því að sjoppan vissi að í Evrópusambandinu giltu þær reglur að sjoppur væru bara ekki ábyrgar nema undir mjög þröngum skilyrðum. Sjoppan fór að djöflast í þessu máli og benti á þetta og íslensku lögunum um skaðsemisábyrgð var breytt árið 2014, 10. gr., þannig að kæmi þetta sama mál upp í dag gæti stúlkan ekki höfðað mál á hendur sjoppunni heldur yrði að láta sér nægja framleiðanda. Þannig eru reglurnar í Evrópusambandinu. Það er allt í lagi með það. Evrópusambandsreglurnar vernda nefnilega stundum réttindi fyrirtækja, stundum sérstaklega réttindi einstaklinga og stundum fer þetta saman. En stundum vegast á réttindi einstaklinga og fyrirtækja. Það er þess vegna rangt að halda því fram að bókun 35 snúist bara um réttindi einstaklinga. Stundum skarast þetta á og við höfum dæmi í dómasafni (Forseti hringir.) Hæstaréttar Íslands í máli nr. 79/2010, um nákvæmlega þetta. (Forseti hringir.) Ég frábið mér rangan málflutning hæstv. utanríkisráðherra í þessum efnum.