158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[15:46]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Ég náði ekki alveg upphafsspurningunni en varðandi afstöðu ESA og hvort hún hafi verið gefin út varðandi þessi málaferli þá hef ég hana ekki, bara ekki að neinu leyti og kann ekki við að svara fyrir hönd Eftirlitsstofnunar EFTA hvað það varðar. En það liggur bara í hlutarins eðli að ef réttarástandið lagast og viðbrögð koma frá íslenskum stjórnvöldum sem leiða þetta mál í jörð, ef svo má segja, þá held ég að það væri ekki til mikils fyrir eftirlitsstofnunina að halda þessum málaferlum til streitu. Varðandi það hvort búið væri að leggja mat á hagsmuni af því að fara þessa leiðina eða ekki þá held ég að engum blöðum sé um það að fletta að við höfum miklu meiri hagsmuni af að leiðrétta þetta óviðunandi réttarástand í þágu almennings í landinu og í þágu þess að Ísland sé áreiðanlegur viðsemjandi og þátttakandi á EES-svæðinu.