Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Ég hef áhuga á að taka upp svona framhald af orðaskiptum mínum við hæstv. utanríkisráðherra, þ.e. hvort hv. þingmaður sé sammála mér um að verkefnið hér eftir sem hingað til sé og verði alltaf að innleiða réttilega þær EES-reglur sem við þurfum að innleiða og okkur ber að gera. Þá er ég að leitast eftir því að fá smá meiri lit á það, vegna þess að mér finnst þetta mál fá of mikla vigt í opinberri umræðu, bæði hjá þeim sem eru fylgjandi og á móti málinu. Það er auðvitað ábyrgðarhluti að tala úr sitthvorri áttinni, en þá er ég að vísa til þess að þetta sé einhvers konar allsherjarlausn á þessu flókna álitaefni og ég tel svo ekki vera. Verkefnið er óbreytt og ég tala nú ekki um þegar maður lítur á texta frumvarpsins sjálfs. Þá þætti mér áhugavert — ég geri mér grein fyrir því að þetta er kannski stórt og flókið atriði — hvort hv. þingmaður telji ekki að orðalagið einmitt um skýra og óskilyrta EES-reglu afmarki þetta bara mjög vel, að það þurfi að vera afdráttarlaus regla sem veitir þá (Forseti hringir.) hvort sem er einstaklingum eða lögaðilum einhver réttindi?