158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[16:04]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Enn á ný ræðum við bókun 35, mál sem ég sagði einhvern tímann hérna í fyrri umræðum á þessu kjörtímabili að væri nú hálfgert lagastagl, hálfgerð þvæla, og við heyrum ef við hlustum grannt eftir að lögfræðingar sökkva sér hérna í hluti sem við sem ekki erum lögfræðimenntuð kannski forðumst en reynum að átta okkur frekar á stóru myndinni. Stóra myndin er auðvitað sú að mikilvægi EES-samningsins er engum vafa undirorpið og við í Framsókn höfum gefið það út margoft að við stöndum klárlega vörð um hann. Spurningin er bara hvernig á að standa vörð um hann og það er auðvitað verkefni allra, auðvitað hérna í þinginu en ekki síst á hendi framkvæmdarvaldsins á hverjum tíma.

Ég fór hérna í ræðum á síðasta þingvetri yfir forsöguna. Við þekkjum það auðvitað að bókun 35 hefur verið til. Það er spurning um hvort hún hafi verið rétt innleidd og Hæstiréttur fór á einhverjum tímapunkti að dæma öðruvísi sem gerði það að verkum að upp komu þessi álitamál sem við höfum verið að glíma við og á kjörtímabilinu 2017–2021 tókum við til varna. En síðan gerist það sem hefur áður verið farið yfir að Hæstiréttur stígur þarna inn og sendir ákveðin skilaboð til þingsins. Í kjölfarið hefur verið unnið að þessu máli.

Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur setti þetta mál á dagskrá sem fyrsta mál sitt í byrjun febrúar 2025. Verkstjórnin mikla taldi mikilvægi þessa máls svo mikið að það yrði mikilvægast að taka þetta strax til afgreiðslu. Það gekk ekki eftir það vorið og aftur var málið tekið upp síðasta haust. Þá brá svo við að málið fór í gegnum umræður og alla vinnu utanríkismálanefndar og var tekið út í byrjun desember 2025. Þingið kemur síðan saman eftir jólafrí í janúar og ekkert bólar á bókun 35, þessu mikilvæga máli sem ríkisstjórnin hafði sett sem fyrsta mál á dagskrá. Febrúar líður og ekki bólar enn á bókun 35. Það hefði væntanlega verið til þess að gera auðveldara að afgreiða málið þá, í upphafi þessa árs, áður en allir þeir atburðir hafa gerst sem síðar hafa gerst. En verkstjórnin mikla ákvað þá að venda sínu kvæði í kross og setja bókun 35, fyrsta mál ríkisstjórnarinnar, mikilvægt mál, á ís og taka upp þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið sem yfirtók síðan svolítið alla umræðu í samfélaginu, eins og ábyggilega var tilgangurinn. Það fór í gegnum huga minn þegar ég horfði á blaðamannafundinn 6. eða 7. mars síðastliðinn að þetta væri einhver stærsta smjörklípa aldarinnar þar sem ríkisstjórnin væri að setja þetta mál á dagskrá til að forðast umræðu um verðbólgu og vexti.

Umræðan var á margan hátt áhugaverð og á margan hátt málefnaleg og endaði í þjóðaratkvæðagreiðslu sem við þekkjum 29. ágúst síðastliðinn þar sem 53% sögðu nei og 47% já, þ.e. meiri hlutinn, nokkuð rúmur eða nokkuð skýr, sagði nei við því að halda áfram viðræðum við Evrópusambandið. Hins vegar voru, held ég, allir sammála um það, bæði þessi 47% og 53%, að allir vildu ná tökum á verðbólgu og vöxtum.

Staðan núna í byrjun október er verri efnahagslega. Verðbólgan hefur farið hækkandi. Það er vandræðagangur á vinnumarkaðnum. Ég myndi segja að ríkisstjórnin hefði átt að setja allt sitt púður í efnahagsmálin. Við ættum að vera að ræða þau í dag og í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar. En í staðinn kom ríkisstjórnin fram með fjárlög sem eru með því marki að reyna að skila hallalausum fjárlögum, sem er jákvætt og við hljótum öll að stefna að því í hvert sinn ef það er mögulegt. En eins og forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnum síðastliðið vor þá skyldi það gert hvað sem það kostar.

Við í Framsókn höfum greint „hvað sem það kostar“ og við höfum tekið eftir því að „hvað sem það kostar“ þýðir að tekjulægri heimili þessa fólks, ungt fólk með börn er að greiða 340.000 meira, eða tjón þeirra er 340.000 að tilteknu tilliti til lána og aukinna útgjalda á ári, þ.e. á þessu ári og ef það tekst ekki á næsta ári að ná tökum á verðbólgunni þá er þetta um nærri 700.000 sem þessi ríkisstjórn er að senda reikninginn á tekjulægri heimili með því að viðhalda sömu krónutölu barnabóta og var árið 2025 þrátt fyrir umtalsverða verðbólgu, hækka sjúklingaskatta og meira að segja taka út vaxtabætur, sem Samfylkingin hefur þó barist fyrir að séu mjög mikilvægur þáttur, sem við erum sammála um, fyrir þá tekjulægstu án þess að það komi eitthvert annað stuðningskerfi í staðinn.

Ég segi bara: Þarna hefði kannski ríkisstjórnin átt frekar að setja fókusinn í byrjun október í staðinn fyrir að setja bókun 35 aftur á dagskrá eins og hún setti bókun 35 á dagskrá sem fyrsta mál í febrúar 2025. En nei, ríkisstjórnin segist ætla að virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar en ekki með því að taka á stærsta málinu í samfélaginu þegar verðbólgan fer vaxandi, vextir hafa farið hækkandi, atvinnuleysi hefur vaxið og hagvöxtur minnkað. Önnur leið til að bregðast við þjóðaratkvæðagreiðslunni væri að draga umsóknina til baka, umsóknarviðræður við Evrópusambandið. Það væri, held ég, á margan hátt skynsamlegt og það væri, held ég, mikilvægast að allt þingið tæki þátt í því. Flokkur fólksins, einn af ríkisstjórnarflokkunum, hefur fimm eða jafnvel sex sinnum lagt fram slíka þingsályktunartillögu. En nei, viðbrögðin eru að setja bókun 35 á dagskrá. Þess vegna er ekki hægt annað en að halda hér ræðu og spyrja ríkisstjórnina af hverju það mál var ekki klárað í byrjun árs 2026, í janúar og febrúar og mars. Af hverju var það ekki klárað þá?

En varðandi bókun 35: Hvernig verjum við EES-samninginn og virðum á sama tíma niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar? Það er líka rétt að taka það upp að Evrópusambandið þarf á hverjum tíma að verja EES-samninginn líka. Það gerðu þeir sannarlega ekki á þessu ári þegar þeir settu tolla á íslenskar iðnaðarvörur. Staðan er þessi og hún er miklu flóknari en í byrjun árs 2026: Hótun ESA — m.a. með fyrrum formann Samfylkingarinnar í broddi fylkingar, það eru þrír stjórnarmenn þar — um að nú sé nóg komið og það eigi að draga Ísland fyrir dómstóla, íslensku ríkisstjórnina, vegna þess að við höfum ekki klárað þetta mál, er ekki gott innlegg inn í þennan tíma í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem fólkið sagði nei, í kjölfarið á því að ríkisstjórnin kemur síðan fram með málið og segir að það séu eðlileg viðbrögð að koma fram með bókun 35, að setja þá málið í farveg dóms. Hótanir fara illa í mig. Mér finnst að maður verði svolítið þversum þegar hótanir eru settar fram á sama tíma.

Svo er önnur spurning: Er skynsamlegt að fara og leysa mál eða fara með þau fyrir þingið í miðju dómsferli? Það hefur áður komið til að ráðherrar Viðreisnar eða ríkisstjórnin lögðu mikla áherslu á það á vorþinginu 2025 að reyna að breyta búvörulögum á meðan þau voru til umfjöllunar á dómstigi. Það varð ekki af þeirri vegferð. Dómurinn féll og ekkert hefur verið gert í því að skarkast í þessum búvörulögum síðan. Kannski er skást að sitja þar af leiðandi á strák sínum og sætta okkur við það að þessi hótun ESA um að draga okkur fyrir dóm sé einfaldlega þar og kannski er erfitt fyrir okkur að fara hérna inn.

En hvaða valkosti höfum við núna í október 2026? Við höfum klárlega þann valkost að sætta okkur við það að taka til varna fyrir EFTA-dómstólnum þótt hér hafi heyrst ólík sjónarmið varðandi það hér áðan. Við höfum klárlega þann valkost að samþykkja frumvarpið óbreytt. Við höfum þriðja möguleikann, að gera einhverja breytingu í meðferð málsins innan utanríkismálanefndar til að auka stuðning við málið, til að skýra málið fyrir þjóðinni, auka stuðninginn hérna inni í þinginu. Hér hugsa ég upphátt: T.d. mætti hugsa sér að setja inn að skylt sé að skoða hvert mál sem komi frá sameiginlegu EES-nefndinni með þessu tilliti. Það þyrfti jafnframt að setja á starfshóp til þess að yfirfara öll lög sem áður hafa verið sett, íslensk lög sem grundvallast á EES-rétti eða hvað annað sem mætti breikka stuðninginn við málið úti í samfélaginu eða hér í þinginu og það er verkefni utanríkismálanefndar núna þegar þessari fyrri umræðu mun ljúka. Það er alveg hægt að fara í meiri dýpt í málinu. Það eru skiptar skoðanir, bæði hér í þinginu, við höfum þegar heyrt það og þekkjum það, það eru líka skiptar skoðanir í samfélaginu. Það eru skiptar skoðanir í flokkum eins og í Framsókn t.d.

Ég hef áður fjallað um málið nokkuð ítarlega og ætla hér aðeins að vísa til þess að sú vegferð sem málið fékk eftir að Hæstiréttur hafði fjallað um málið með tilteknum hætti — það var til að mynda fengin sérstök greinargerð með áliti Þorgeirs Örlygssonar, sem er sannarlega fyrrverandi forseti Hæstaréttar og fyrrum dómari við EFTA-dómstólinn og hér í fyrri umræðu var talsvert mikil umræða um það hvort og þá að hvaða marki svigrúm löggjafans til lagasetningar verði takmarkað við upptöku á þessari útgáfu af bókun 35 og, með leyfi forseta, óska ég eftir að lesa upp úr greinargerðinni og reyndar ræðu minni líka frá fyrri tíma:

„Verði frumvarp þetta að lögum, með hliðsjón af grundvallarreglu íslenskrar stjórnskipunar — að fyrri löggjafarþing geti ekki bundið hendur þeirra sem á eftir koma.

Þetta álit er síðan 10. maí 2023. Þetta hefur sem sagt legið fyrir býsna lengi. Niðurstaða álitsgerðar hans er sú að frumvarp þetta, verði það að lögum, takmarki í engu svigrúm löggjafans til lagasetningar og fer efni þess því ekki í bága við fyrrgreinda grundvallarreglu íslenskrar stjórnskipunar. Jafnframt hafi Alþingi fullt og óskorað vald síðar meir til að fella umrætt ákvæði úr gildi verði frumvarpið að lögum og setja lög sem ganga gegn réttilega innleiddum EES-reglum. Með öðrum orðum: Valdið er okkar. Það er það sem þessi álitsgerð segir …“

Þetta er eitt af því sem við þurfum að fjalla um í utanríkismálanefnd. Ég ætla ekki að tjá mig neitt frekar um það heldur vísa að öðru leyti í fyrri ræður mínar um bókun 35 á síðustu misserum og árum.

Verkefni utanríkismálanefndar er ærið ef við ætlum að reyna að komast í gegnum þetta og reyna að breikka stuðninginn, skýra málið, ekki bara hér fyrir þingheimi heldur fyrir þjóðinni allri, því að þar hefur mér fundist ríkisstjórninni hafa mistekist og taka málið einhvern veginn á dagskrá í umfjöllun þótt ég hafi ákveðinn skilning á því þar sem þetta getur orðið talsvert lagastagl og þá loka flestir eyrum.