158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[16:33]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að endurtaka svar mitt við spurningu hæstv. utanríkisráðherra, að alveg sama hvernig málið er þá verðum við alltaf að klára málið. Dómsmál er bara eitt. Við höfum þrjá valkosti núna í utanríkismálanefnd. Það er að leggja til, eins og meiri hlutinn gerði hérna í byrjun desember síðastliðnum, málið óbreytt. Við getum reynt að finna einhverja leið til þess að breikka stuðninginn við málið og skýra það eða við getum bara ákveðið, þar sem ESA hefur tekið þá ákvörðun að sækja málið fyrir dómi á sama tíma og málið er til umfjöllunar hér, sem mér finnst vera hótun, já, mér finnst það, og óþægilegt, að fara þá leið. Og þessa þrjá valkosti höfum við til þess að fara yfir í nefndinni. En það breytir því ekki að það hefur enginn stjórnarliði svarað þessari spurningu: Af hverju, í ljósi mikilvægis málsins af hálfu meiri hlutans, var málið ekki klárað í janúar, (Forseti hringir.) febrúar eða mars á þessu ári?