Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið þó að ég sé kannski ekki miklu nær. Hér er til staðar réttaróvissa og ég ætla bara að standa við þá ályktun mína. Það er réttaróvissa gagnvart fjórfrelsinu, það nær ekki fram að ganga með sama hætti og annars staðar á EES-svæðinu, nær ekki fram að ganga með sama hætti og í Noregi. Það skapar vandamál fyrir einstaklinga, fólk og fyrirtæki í þessu landi sem nýtur ýmist ekki þeirra réttinda sem það á tilkall til samkvæmt EES-samningnum vegna óskýrra reglna sem hafa skapast í réttarframkvæmd, skýrleika sem var til staðar framan af og hefur vakið athygli hjá Eftirlitsstofnun EFTA í áraraðir.
Einhverjum kann að þykja málefnalegt að gera það tortryggilegt að hér sé fólk með feril í stjórnmálum í ábyrgðarstöðum þar eins og það sé einrátt um að hér sé verið að tryggja það að þátttakendur á Evrópska efnahagssvæðinu standi við skyldur sínar líkt og þeirri stofnun er skylt að gera. Ég vil bara taka það fram að sigrar hafa verið sóttir fyrir hönd Íslands eins og hv. þingmaður bendir réttilega á. Þá var það ekki síst ákveðnum ráðherrum að þakka að sá sigur náðist í svokölluðu Icesave-máli. Það var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem fór hnarreist til Lúxemborgar og gerði ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni í krafti vilja þjóðarinnar. Hv. þingmaður getur flett því upp hver var efnahags- og viðskiptaráðherra á þeim tíma.
Ég vil hins vegar leggja áherslu á að ég er engu nær um það hver ávinningur Íslands yrði af því að fara og sækja meinta sigra, ólíklega, í Brussel, í þessu tiltekna máli. Því þarf að svara gagnvart þjóðinni. Sjálf vil ég standa fyrir því að leiða þetta mál í jörð og sækja öðruvísi sigra í Brussel í krafti öflugrar hagsmunagæslu (Forseti hringir.) þar sem við stöndum vörð um EES-samninginn og ræktum hann, stöndum vörð um okkar skyldur en treystum á það að okkar (Forseti hringir.) réttindi nái fram að ganga í krafti öflugrar hagsmunagæslu. (Forseti hringir.) Það eru sigrarnir sem við eigum að sækja. Komum fram við EES-samninginn eins og hann er en ekki sem eitthvert ímyndað í boði Miðflokksins.
(Forseti (KÁB): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)