158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[17:28]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Hingað erum við aftur komin. Aftur erum við að ræða bókun 35 en staðan er önnur en þegar Alþingi fjallaði síðast um málið. ESA hefur höfðað samningsbrotamál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Sá lagalegi ágreiningur sem staðið hefur árum saman er því kominn fyrir dómstól. Það hlýtur að hafa þýðingu fyrir það hvernig Alþingi nálgast málið nú. Mér finnst fyrsta spurningin því vera einföld: Hvers vegna á Alþingi að hraða þessu máli núna? Þetta mál kom ekki upp í síðustu viku. Það kom ekki upp daginn eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. ESA gerði fyrstu athugasemdir sínar árið 2012. Utanríkisráðherra sagði sjálf hér á Alþingi í febrúar 2025 að ef málið yrði ekki afgreitt gæti það mjög líklega farið fyrir EFTA-dómstólinn. Samkvæmt frásögn Árna Páls Árnasonar var stjórnvöldum gert ljóst í vor að yrði frumvarpið ekki að lögum fyrir þinglok myndi ESA bera málið undir dómstólinn. Ríkisstjórnin hafði því ekki bara almenna vitneskju um að málshöfðun væri möguleg, hún vissi hvað stóð til. Samt lauk hún ekki málinu.

Frumvarpið var lagt fram vorið 2025, fór til nefndar og ríkisstjórnin hafði þingstyrkinn til að klára málið. Það var aftur lagt fram á næsta þingi, haustið 2025, í september, og nefndin lauk vinnu sinni og skilaði nefndaráliti 2. desember 2025. Samt var það ekki afgreitt. Ef málið var svona brýnt, hvers vegna var það þá ekki klárað þegar ríkisstjórnin hafði tækifæri til þess? Það var ákvörðun ríkisstjórnarinnar að klára ekki málið. Þess vegna gengur ekki að koma hingað nú, eftir að ESA hefur höfðað mál, og láta eins og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar hafi skyndilega skapað neyðarástand fyrir Alþingi. Ríkisstjórnin þarf að skýra hvaða samskipti áttu sér stað við ESA, hvaða áhrif hún telur málshöfðunina hafa á frumvarpið og hvers vegna svo mikil tímapressa er nú þegar ágreiningurinn er kominn fyrir dómstólinn. Það er ríkisstjórnin sem hefur haldið á málinu og hún ber ábyrgð á því hvernig því hefur verið stýrt.

Frú forseti. Afstaða mín og Sjálfstæðisflokksins til EES-samningsins hefur ekki breyst. EES-samningurinn hefur reynst Íslandi vel og er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenskt atvinnulíf og íslenska borgara. Við eigum að standa við þær skuldbindingar sem við höfum tekið á okkur samkvæmt honum. En alþjóðlegt samstarf útilokar ekki lögfræðilegan ágreining um inntak samninga. EFTA-dómstóllinn er hluti af þeirri stofnanaskipan sem EES-samstarfið sjálft byggir á. Að bera ágreining undir þann dómstól er ekki að grafa undan EES-samningnum, það er hluti af honum. Við eigum að standa við okkar skyldur en jafnframt standa fast á okkar réttindum og verja íslenska hagsmuni. Og eitt grundvallaratriði þarf alltaf að vera skýrt: Það er Alþingi Íslendinga sem setur íslensk lög. EES-reglur taka ekki sjálfkrafa gildi hér á landi. EES-gerðir verða hluti íslensks réttar eftir þeim leiðum sem íslensk stjórnskipan gerir ráð fyrir. Núverandi frumvarp tekur aðeins til EES-skuldbindinga sem hafa verið innleiddar í íslenskan rétt. Við sjálfstæðismenn stöndum fast á því að Alþingi Íslendinga eigi síðasta orðið um þau lög sem gilda á Íslandi.

Frú forseti. Það þarf líka að fara varlega með þá einföldu mynd að Alþingi þurfi nú bara að samþykkja frumvarpið og þá sé vandamálið leyst. Áður var teflt fram þeim rökum að með lagasetningu mætti koma í veg fyrir málshöfðun. Sú forsenda er ekki lengur til staðar. Málið hefur verið höfðað. ESA hefur óskað eftir því að EFTA-dómstóllinn taki afstöðu til þess hvort Ísland hafi fullnægt skyldum sínum samkvæmt bókun 35. Þá vaknar eðlilega spurningin: Er skynsamlegt að lögfesta nú almenna forgangsreglu með nákvæmlega þeirri útfærslu sem liggur fyrir áður en áhrif þessarar nýju stöðu hafa verið metin? Dómstóllinn mun ekki skrifa lögin fyrir Alþingi en dómur kann að skipta máli um forsendur umfangs skuldbindingarinnar og það hvernig íslensk stjórnvöld þurfa að bregðast við niðurstöðunni. Það viðurkennir ríkisstjórnin sjálf í greinargerð frumvarpsins. Við fyrri meðferð hafa líka komið fram ólík lögfræðileg sjónarmið um útfærslu forgangsreglunnar og m.a. hefur verið bent á álitaefni um réttaröryggi, fullveldi og stöðu Alþingis þegar almenn og opin forgangsregla er sett. Þegar Alþingi setur almennar reglu um innbyrðis stöðu íslenskra laga á að vanda til verka.

Frú forseti. Svo er það þjóðaratkvæðagreiðslan. Hún snerist ekki um bókun 35. Meiri hluti þjóðarinnar hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Það var niðurstaðan og hún var skýr og þá finnst mér líka tímabært að taka af allan vafa um stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu. Árið 2015 tilkynntu íslensk stjórnvöld sambandinu að Ísland hygðist ekki hefja aðildarviðræður að nýju og að ekki bæri lengur að líta á Ísland sem umsóknarríki. Samt halda núverandi stjórnvöld og Evrópusambandið því fram að umsóknin sé enn í gildi. Þá skulum við einfaldlega ganga frá málinu. Við formenn stjórnarandstöðuflokkanna leggjum fram tillögu um að ríkisstjórninni verði falið að tilkynna Evrópusambandinu með skýrum og ótvíræðum hætti að Ísland sé ekki umsóknarríki, að engin umsókn um aðild sé til staðar og að afla skriflegrar staðfestingar sambandsins á því. Þjóðin var spurð hvort hefja ætti aðildarviðræður að nýju og meiri hlutinn sagði nei. Það væri fráleitt að láta á sama tíma standa óbreytt að Ísland sé áfram talið umsóknarríki á grundvelli þeirrar umsóknar sem viðræðurnar áttu að byggjast á. Tökum af allan vafa. Drögum umsóknina formlega til baka og fáum staðfest að Ísland sé ekki umsóknarríki.

Bókun 35 er annað mál. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar fól ekki í sér kröfu um að ríkisstjórnin setti bókun 35 í sérstakan forgang. Það mál hafði verið á borði hennar löngu áður og ríkisstjórnin kaus sjálf að ljúka því ekki. Þá verður líka að horfa á forgangsröðun ríkisstjórnarinnar almennt. Verðbólgan er allt of mikil, vextir eru of háir og atvinnuleysi fer vaxandi. Ríkisstjórnin hefur lagt fram umtalsverðar skatta- og gjaldahækkanir sem leggjast á heimili og fyrirtæki. Efnahagsmálin eru verkefnið sem ríkisstjórnin var kosin til að ná tökum á. Þess vegna þarf ríkisstjórnin að svara því hvers vegna hún, eftir að hafa haft öll færi á að klára bókun 35, en ekki gert það, telji nú að einmitt þetta mál eigi að ganga fyrir með slíkum hraða. Það er pólitísk forgangsröðun sem ríkisstjórnin sjálf þarf að svara fyrir.

Frú forseti. Ég hef áður tjáð mig um þetta mál og ætla ekkert að hlaupa undan þeim orðum mínum. Ég sagði að ef ekkert yrði gert væri líklegt að næsta skref yrði málshöfðun gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum. Ég sagði líka að slíkt mál gæti haft áhrif á íslenskt réttarumhverfi og ég teldi rétt að reyna að leysa málið á okkar eigin forsendum. Ég stend við þau grundvallarsjónarmið en það sem þá var möguleg þróun er nú orðið að veruleika. ESA hefur þegar höfðað mál. Það breytir ekki afstöðu minni til EES-samningsins eða þess að Ísland eigi að standa við skuldbindingar sínar. En það breytir þeirri stöðu sem Alþingi þarf að meta þegar það ákveður hvernig rétt sé að halda áfram með þetta frumvarp.

Frú forseti. Málið hefur verið á borði ríkisstjórnarinnar lengi. Hún hafði tækifæri til að ljúka því áður en mál var höfðað en valdi að gera það ekki. Nú er ágreiningurinn kominn fyrir EFTA-dómstólinn og Alþingi á ekki að láta eins og ekkert hafi breyst. Ríkisstjórnin þarf að svara hvers vegna hún vill hraða málinu nú og hvaða áhrif ný staða hefur á frumvarpið. Ríkisstjórnin þarf líka að svara því hvers vegna þetta er forgangsmál á sama tíma og verðbólga er of mikil, vextir of háir og skattbyrði heimila og fyrirtækja eykst. Væri ekki nær að einhenda sér í þau efnahagslegu verkefni sem ríkisstjórnin var sannarlega kosin til að leysa? Við eigum ekki að flýta okkur bara af því að ríkisstjórnin gerði þetta ekki fyrr. Við eigum að vanda okkur og við Sjálfstæðismenn munum áfram standa fast á því að Ísland efni skuldbindingar sínar, verji hagsmuni sína og að Alþingi Íslendinga hafi síðasta orðið um íslenska lagasetningu.