Evrópska efnahagssvæðið.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem til mín er beint. Hér er spurt hvort ég treysti ríkisstjórninni til að halda á þessu máli. Ríkisstjórnin, eins og ég nefndi hér áðan, fór af stað með þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem hún sagðist ætla að treysta þjóðinni. Þá verður ríkisstjórnin sömuleiðis að þora að taka við niðurstöðu þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu og fylgja henni eftir. Hæstv. utanríkisráðherra sagðist ætla að fara með málið til meðferðar í hv. utanríkismálanefnd. Ég kannast ekki við að það hafi verið gert og hæstv. utanríkisráðherra ætlaði að ráðfæra sig um næstu skref við utanríkismálanefnd. Ég kalla eftir svörum: Hefur það verið gert?
Sömuleiðis vil ég líka fá að nefna það að þetta mál fer nú til nefndar. Það fer núna, að lokinni þessari 1. umræðu, til utanríkismálanefndar til frekari skoðunar og ég hef trú á því að nefndin taki vel utan um þetta mál og ígrundi það vel vegna þess að staða þessa máls hefur gjörbreyst frá því að það var síðast í meðförum þingsins. Það er óyggjandi. Eins og ég nefni þá er engin trygging fyrir því að það fáist endanleg niðurstaða í þetta mál ef það er samþykkt hér en ég bind vonir við það að málið fái góða umfjöllun í nefndinni og verði skoðað ítarlega þar.