Evrópska efnahagssvæðið.
Virðulegi forseti. Mig langar að byrja á því að biðla til almennings að hann sjái í gegnum þessa reyksprengju ríkisstjórnarinnar og hæstv. utanríkisráðherra sem þetta mál er. Ríkisstjórnarsamstarfið logar stafnanna á milli vegna hvers hneykslismálsins á fætur öðru en auðvitað aðallega vegna kolsvartrar stöðu í efnahagsmálum landsins. Hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson fór ágætlega yfir þetta í pontu áðan. Auðvitað vill ríkisstjórnin frekar að athygli þingheims og almennings beinist að hártogunum um flókin lagatæknileg úrlausnarefni í tengslum við EES-samninginn, úrlausnarefni sem okkar færustu lögfræðingar ná ekki einu sinni saman um, miklu frekar en að ræða hvað þau standa sig herfilega við að stýra þessu landi, herfilega við að uppfylla sín helstu kosningaloforð um stöðugleika í efnahagsmálum.
Og talandi um forgangsmál og athygli þingheims. Þetta mál beinir líka athyglinni frá þeirri sjálfsögðu kröfu að Evrópusambandinu verði tilkynnt um það formlega að Ísland sé ekki umsóknarríki um aðild að ESB. Þetta hefur auðvitað verið öllum ljóst. Við höfum ekki verið listuð sem umsóknarríki á vef Evrópusambandsins. Stutt leit á internetinu staðfestir þetta fyrir alla sem það kanna. Við sem tökum þátt í alþjóðastarfi á vegum Evrópusambandsins fáum gögn og okkur er úthlutað sætum þar sem við erum ekki flokkuð sem umsóknarríki, þvert á móti. En af því að ESB blandaði sér inn í kosningabaráttuna hérlendis með eftirminnilegum hætti með nýjum yfirlýsingum um stöðu Íslands sem umsóknarríki er auðvitað mikilvægt að ríkisstjórnin virði vilja meiri hluta þjóðarinnar og gangi frá þessu máli með sómasamlegum hætti, eins og reyndar einhverjir hv. stjórnarþingmenn hafa lýst yfir stuðningi við, eðlilega. En ríkisstjórnin vill forðast umræðu um skyldur sínar í kjölfar taps í þjóðaratkvæðagreiðslunni og afvegaleiða umræðuna með þessu máli. Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir fór hér yfir þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna sem leggur ríkisstjórninni lið í þessum efnum. Klárum það mál.
Hæstv. utanríkisráðherra kemur síðan hér í pontu og segir þetta mál vera lykilmál til þess að standa vörð um EES-samninginn. Nú, lykilmál? Forgangsmál? Hvað var hæstv. ráðherra að gera undanfarin tvö ár? Gengst hún þá loksins við því að hún hafi ekki verið að passa upp á EES-samstarfið? Hún segir hér að þetta sé lykilatriði í þeirri hagsmunagæslu en þó hefur hún ekki sett þetta mál á oddinn hér á Alþingi, hvorki í þinglokasamningum né í öðrum störfum. Það er auðvelt að hrekja þessi orð hennar. Þetta hefur verið algjör afgangsstærð en núna eigum við að kaupa það að EES-samningurinn standi og falli með þessu frumvarpi hennar. Almenningur hefur séð það að þessi meiri hluti beitir öllum brögðum til að ná í gegn sínum forgangsmálum. Það hefur ekki vantað hjá þessari ríkisstjórn. Að bera fyrir sig stjórnarandstöðu í þeim efnum er hjákátlegt. Þetta mál hefur einfaldlega ekki verið nógu ofarlega á blaði hjá ríkisstjórninni, ekki fyrr en núna. Og ég verð að segja að það var miður að hlusta á tóninn sem var sleginn eftir tap ríkisstjórnarinnar í baráttu hennar fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið þar sem þetta mál var dregið fram í því samhengi korteri eftir að úrslitin urðu ljós. Ég veit að fleiri upplifðu þennan tón.
En hér erum við komin saman og ræðum frumvarp hæstv. utanríkisráðherra um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, svokallað mál um bókun 35, af því að eins og hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir fór hér yfir þá er það ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn sem hafa dagskrárvaldið í þessum þingsal. Bókun 35 hefur reyndar verið hluti af EES-samningnum og þar með íslenskum lögum allt frá samþykkt hans 1993. Ég hef orðið vör við það að jafnvel hv. stjórnarþingmenn skilja ekki grundvallaratriði þessa máls, þekkja ekki sögu og forsendur bókunar 35. Það dæmist mögulega á hv. utanríkismálanefnd að fræða hv. stjórnarþingmenn betur um þetta fyrst framkvæmdarvaldið stendur sig ekki í upplýsingagjöf. Upplýsingagjöf eða áróður vafðist reyndar ekki fyrir þeim í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, þá var öllu tjaldað til.
Í stuttu máli var það svo að EFTA-ríkin féllust ekki á það í samningaviðræðum um EES-samninginn að taka upp forgangsregluna sem gildir innan ESB, þá EB. Með bókun 35 sem var lögfest hér þá þegar 1993 skuldbundum við okkur til að, ef þörf væri á, lögfesta túlkunarreglu þess efnis að ef það kæmi upp misræmi milli EES-reglna sem hefðu verið lögfestar og annarra ákvæða í lögum, þá gildi EES-reglur í því tilviki. Þetta samþykktum við árið 1993. Um það er enginn ágreiningur. Í 3. gr. íslenskra laga um EES-samninginn segir orðrétt, með leyfi forseta: „Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“ Svona gekk þetta áratugum saman og EES-samningurinn hefur virkað vel, þessi mikilvægasti viðskiptasamningur okkar. En það hafa sannarlega komið upp einhverjir hnökrar og áskoranir og það er ekki síður verkefni stjórnvalda á hverjum tíma að mæta þeim áskorunum. Ég frábið mér málflutning um að það að við nýtum okkur verkfæri okkar í EES-samningnum eða tökumst á um túlkun hans og framkvæmd sé einhvers konar aðför að samningnum, að hæstv. utanríkisráðherra og hv. stjórnarþingmenn komi hér í pontu og tali um EFTA-dómstólinn og dómarana þar sem einhvers konar erlent afl sem eigi ekki að taka ákvarðanir fyrir Ísland og ali þannig á tortryggni í garð EFTA-dómstólsins. Og af því að ég hef áhyggjur af þekkingu hv. stjórnarþingmanna á framkvæmd EES-samningsins get ég upplýst um það að málarekstur fyrir EFTA-dómstólnum sem tengist Íslandi telur tugi mála. Ekki það að við erum auðvitað orðin alvön því að hlusta á þetta sama fólk tala niður EES-samninginn. Þetta sama fólk hefur eytt öllum sínum tíma orku og miklum fjármunum íslenskra skattgreiðenda undanfarna mánuði í vegferð sem gekk út á það að segja upp EES-samningnum.
Ég ætla líka að hafna því algjörlega að sitja undir umvöndunum ESB-sinna, hv. stjórnarþingmanna og hæstv. ráðherra um skilgreiningu á því hvernig við stöndum vörð um EES-samninginn. Fyrir mitt leyti verð ég að viðurkenna að ég vantreysti ríkisstjórninni í þeim efnum. Ég vantreysti líka hv. stjórnarþingmönnum sem framleiddu myndbönd og greinar í tugatali í sumar þar sem þeir töluðu niður EES-samninginn. Ég gæti t.d. nefnt orð hæstv. ráðherra Hönnu Katrínar Friðriksson sem eitt dæmi af mörgum þar sem hún sagði orðrétt í þættinum Vikulokin, með leyfi forseta: „Við erum áhrifalaus innan EES-samningsins.“ Eigum við sem höfum barist fyrir bættri framkvæmd og fyrir hagsmunagæslu okkar í EES, bæði á vettvangi framkvæmdarvaldsins og ekki síður hér á vettvangi þingsins, að sitja undir umvöndunum þessa fólks sem tekur sér síðan allt í einu stöðu æðstu presta, riddara EES-samningsins? Mér finnst það satt best að segja ekki mjög sannfærandi, virðulegi forseti.
Ég var búin að nefna áskoranir í tengslum við EES-samninginn. Þetta eru jú ekki allt saman regnbogar og rósir í þessu samstarfi okkar. Ég verð að taka undir gagnrýni hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og segja að það væri óskandi að ríkisstjórnin hefði meiri áhuga á því að Evrópusambandið stæði við EES-samninginn, bryti ekki á okkur í samstarfinu með ólögmætum hætti. Það væri betri bragur á því eins og einhver sagði. Það verður heldur ekki hjá því komist að ræða þá stöðu sem upp er komin og var ekki áður, þetta er ný staða, sem er sú að mál hefur verið höfðað sem tengist þessu máli fyrir EFTA-dómstólnum. Einhverjir hafa bent á að tímasetningin sé furðuleg og auðvitað er það fyrir neðan allar hellur sem einhverjir hafa haldið fram að málið hafi beðið meðan við afgreiddum hér ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar og þjóðaratkvæðagreiðslu. Annaðhvort skiptir þetta mál höfuðmáli fyrir EES-samninginn eða ekki. Brussel-brölt ríkisstjórnarinnar breytir auðvitað engu þar um. En staðan er sannarlega breytt nú þegar málið hefur verið höfðað og ég tel að það sé meðal þess sem við þurfum að ræða vel og vandlega í utanríkismálanefnd. Um það hefur hæstv. ráðherra Eyjólfur Ármannsson m.a. sagt, með leyfi forseta:
„Ég hef verið þeirrar skoðunar að EFTA-dómstóllinn ætti að útkljá í samningsbrotamáli ágreining um hvort 3. gr. EES-laganna væri fullnægjandi fyrir Ísland til að tryggja einsleitni reglna á EES-svæðinu. “
Þetta er mikilvægt innlegg frá hæstv. ráðherra og sýnir að það er ekki full samstaða innan ríkisstjórnarinnar um það hvaða leið er best að fara í þessu máli og ekki bara í ríkisstjórninni. Þessi umræða er orðin mjög hávær í íslensku samfélagi. Þessi ríkisstjórn hefur sannarlega vísað til kannana og viðhorfs ungs fólks þegar það hefur hentað, ekki síst til stuðnings ESB-vegferð sem þó blessunarlega varð ekki ofan á. Kannanir á viðhorfi almennings sýna svo ekki verður um villst að það eru mjög skiptar skoðanir um afgreiðslu þessa máls. Þessi ríkisstjórn og hv. stjórnarþingmenn hafa líka notað það sem rök að það sé mikilvægt að við skerum úr um ákveðin mál, kíkjum í ákveðna pakka til að mál hangi ekki áfram yfir okkur svo þjóðin sé nú ekki föst í þrætum. Það er ákveðið sjónarmið í þessu máli nú þegar málið hefur verið höfðað fyrir EFTA-dómstólnum.
Mín afstaða er þessi og hún hefur ekki breyst: Ég er stuðningsmaður EES-samstarfsins og ég hef unnið ötullega að hagsmunum okkar þar og vernd samningsins í mínum störfum. Það er mikilvægt fyrir Ísland að EES-samningurinn virki en það er ekki síður mikilvægt að það sé almenn og breið samstaða um samninginn hér á landi. Við getum ekki lokað augunum fyrir ágreiningi sem hefur risið vegna þessa máls, ekki bara í almennri umræðu heldur ekki síður meðal virtra fræðimanna sem greinir á um þá leið sem við eigum að fara í þessu máli. Þetta mál hefur verið sett á dagskrá af ríkisstjórninni og er því á leið til hv. utanríkismálanefndar hvar ég sit. Mín skoðun er sú að þar eigum við að skoða málið vel og vandlega og í rólegheitunum, ekki síst í ljósi þeirrar nýju stöðu sem upp er komin varðandi málshöfðun á hendur Íslandi. Eftir tveggja ára aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar er ekkert sem knýr á um hamagang í þessu máli. Á meðan hvet ég þingheim og almenning til að setja í forgang alvarlega stöðu í efnahagsmálum landsins undir forystu þessarar ríkisstjórnar. Ekki falla fyrir reyksprengjum ríkisstjórnarinnar. Efnahagsmálin eru algjört forgangsmál. Við getum ekki sætt okkur við aðgerðaleysi eða rangar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í þeim málum í tvö ár í viðbót.