158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[19:20]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir hennar afbragðsfínu ræðu. Í mínum huga er þessi framlagning bókunar 35 á þessum tímapunkti hér í þinginu ákveðin pólitísk reyksprengja. Ríkisstjórnin er að reyna að beina umræðunni frá efnahagsástandinu, frá því að ríkisstjórnin er með allt í skrúfunni, yfir í það að ræða bókun 35. En mig langar að spyrja hins vegar hv. þingmann þar sem ég hef bara eina mínútu, virðulegur forseti …

(Forseti (BergÓ): Hv. þingmaður hefur mínútu til viðbótar.)

Mínútu til viðbótar, já. Þá langar mig kannski að koma að því sem ég ætlaði að spyrja um, þakka þér fyrir, virðulegur forseti. Í ljósi þess sem hefur breyst frá því að við vorum að ræða hér bókun 35 fyrst, að nú er ESA búið að höfða mál á hendur Íslandi, er ekki hv. þingmaður sammála því að það væri nær að íslenska ríkið myndi þá einbeita sér nú að því að grípa til varna fyrir hönd Íslands og sjá hvað kemur út úr EFTA-dómstólnum og klára það áður en haldið er áfram að reyna að keyra þetta mál hér í gegn?