Evrópska efnahagssvæðið.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Það er tvennt sem mig langar til að ræða við hv. þingmann. Annars vegar er það atriði sem ég hafði hreinlega ekki kveikt á fyrr en hv. þingmaður nefndi það hér í ræðu, frekar en í andsvari þar á undan, en alla vega í ræðunni hér áðan, það eru þessir and-EES-flokkar sem núna fara fyrir ríkisstjórn. Ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki áttað mig á því að það er hreinlega alveg ótrúlegt að finna sig í þeirri stöðu að hér komi hæstv. utanríkisráðherra upp og hrakyrðist í garð þeirra sem reyna að hafa hér eitthvert skikk á sínum málflutningi og brigsli þeim, sérstaklega okkur Miðflokksþingmönnum, um hið ýmsa í garð EES-samningsins sem ekki er á neinum rökum reist. Svo þegar nánar er að gætt þá eru það flokkar hæstv. utanríkisráðherra og forsætisráðherra sem eru í raun hörðustu andstæðingar EES-samningsins. Ég vil bara þakka hv. þingmanni fyrir að setja þetta í samhengi því að ekki hafði mér tekist það, alla vega ekki með þessum skýra hætti.
En spurningin sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um, sem fyrrverandi utanríkisráðherra er um bréfaskriftir árið 2020 frá apríl og fram í september, þrjú bréf sem fóru frá ráðuneyti hæstv. ráðherra þess tíma til ESA vegna bréfaskrifta þaðan. Ég veit að það er ósanngjarnt að spyrja út í svona, þetta eru einhverjir tugir blaðsíðna samanlagt. En mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann geti fljótt á litið áttað sig á hvort eitthvað af þeim rökum sem sett voru fram á þeim tíma til varnar hagsmunum Íslands hafi úrelst. Ég spurði hæstv. utanríkisráðherra um þetta í andsvari (Forseti hringir.) hér við upphaf umræðunnar og hæstv. utanríkisráðherra var enn og svaraði engu þannig að ég ætla að gera aðra atlögu núna.