158. löggjafarþing — 13. fundur,  6. okt. 2026.

Evrópska efnahagssvæðið.

134. mál
[20:59]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir hans fyrra svar hér. Ég vil taka undir með hv. þingmanni. Ég held að það sem hann var að gefa í skyn, og ég held að það sé rétt, að skaðinn gagnvart EES-samningnum af þeirri vegferð sem var farið af stað í í sumar eigi eftir að koma í ljós. Ég tel að þessi vegferð hafi veikt EES-samninginn og stöðu okkar og ég held að tíminn eigi eftir að leiða í ljós hver í rauninni skaðinn af þessari vegferð verður. En það er vatn undir brúna, eins og menn segja, og menn verða að horfa fram á við.

Ég ræddi þetta líka við hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur og mig langar kannski að heyra frá hv. þingmanni líka. Nú er þetta mál að koma inn í þriðja sinn. (BergÓ: Fjórða. )Fjórða sinn. Já, það er búið að koma þrisvar áður. Ég leiðrétti mig: Í fjórða sinn síðan hæstv. ríkisstjórn tók við. Það hefur ekki vantað yfirlýsingar um aukinn og mikinn þingstyrk, þetta sé verkstjórn og öll þessi nöfn, verkin tala, verkstjórn og allt þetta. En á sama tíma er þetta mál alltaf að dingla hér inn og út eins og jójó. Það vill nú oft þannig til að þetta mál kemur inn á óþægilegum tíma fyrir hæstv. ríkisstjórn, það er tekið út aftur, sett inn, tekið út aftur og nú talar hæstv. ráðherra um að það þurfi liðsinni stjórnarandstöðuflokkanna til að koma þessu máli í gegn.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, svona miðað við að við erum að ræða þetta mál hér í fjórða skipti, og hæstv. ríkisstjórn er ekki búin að sitja í tvö ár: Hefur hann einhverja trú á því að ríkisstjórnin ætli í rauninni að klára þetta mál eða er þetta bara mál sem er dinglað hér inn til að beina athyglinni annað og verður gott að eiga eins og jójó sem er hægt að henda inn í þingsal þegar á reynir?